23.08.1917
Neðri deild: 41. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 189 í B-deild Alþingistíðinda. (43)

1. mál, fjárlög 1918 og 1919

Pjetur Ottesen:

Jeg ætla bara að segja fáein orð viðvíkjandi orðum háttv. framsm. fjárveitinganefndar (M. P.) um bátastyrkinn. Hann sagði, að Hvítárbáturinn kæmi ekki að neinum notum (M. P. : Það er samgöngumálanefndin, sem segir það). Nú, er það samgöngumálanefndin. Það er ekkert betra fyrir það og gersamlega rangt. Jeg held, að þessi staðhæfing hljóti að byggjast á ókunnugleika hjá háttv. nefnd. Sannleikurinn er sá, að báturinn er mikið notaður og kemur að góðu haldi. Sama er að segja um Hvalfjarðarbátinn. Það er blátt áfram nauðsynlegt að hafa hann, og hann kemur að ágætu liði. Það er líka vitanlegt, að enginn jafnstór fjörður á landinu er með öllu styrklaus til samgangna. Gufuskipin, sem til strandferða ganga, koma aldrei þangað inn. Styrkurinn til þessara bátsferða er því það eina, sem landssjóður leggur til samgangnanna á þessu svæði. Báðir þessir bátar hafa því fullan rjett á sjer, og væri fylsta ástæða til og öll sanngirni mælir með því, að styrkurinn til þeirra væri nokkuð hækkaður. Mjer finst það æði undarlegt að ráðast á þessa styrki nú og aðra slíka, sem aldrei hefir verið hreyft við áður. Það kemur kynlega fyrir, að háttv. fjárveitinganefnd skuli leggja á móti þeim nú, þegar mest er þörfin á að ljetta undir með samgöngum, og virðist mjer þetta stór ljóður á ráði þeirrar háttv. nefndar. Jeg vona því, að þessar brtt. háttv. fjárveitinganefndar verði feldar, en tillögur mínar um hækkun styrksins verði samþyktar.