07.07.1917
Neðri deild: 5. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 859 í B-deild Alþingistíðinda. (433)
16. mál, dýrtíðaruppbót handa embættis- og sýslumönnum landssjóðs
Gísli Sveinsson:
Jeg get sagt, eins og háttv. 1. þm. N.-M. (J. J.), að jeg ætlaði ekki að taka til máls við þessa 1. umr. Mjer hefir komið það öldungis á óvart, hve miklar umræður hafa spunnist út af þessu frv. nú, þar sem ekki liggur annað fyrir en að vísa því til nefndar. Jeg skal ekki fara neitt út í málið, eins og það liggur fyrir nú, enda mun gefast tækifæri til þess síðar. Það hefir ekki heldur komið fram neitt nýtt í málinu, og mætti því nægja að vísa til þess, sem jeg og aðrir, sem voru á líkri skoðun á aukaþinginu í vetur, sögðum þá. Það stendur enn óhrakið, þótt andstæðingarnir sjeu nú að tyggja upp það, sem þeir báru fram á aukaþinginu. Það eina, sem gæti breytt afstöðu manna í þessu efni, er vitanlega það, ef landið kæmist í þá þröng, að ekki yrði viðlit að fá rönd við reist. Þar af gæti leitt, að engin leið yrði til að bæta starfsmönnum landsins upp það tap, sem þeir bíða af óáran þeirri, er styrjöldin leiðir yfir landið. Það sjest á sínum tíma, hvort hagur landsins er svo bágborinn, að ástæða sje til að láta nú undir höfuð leggjast að veita starfsmönnum landsins hæfilega dýrtíðaruppbót.
Háttv. þm. Borgf. (P. O.), sem síðast talaði, gat þess, að fordæmi aukaþingsins í vetur hefði þótt ilt, hvarvetna um landið. Jeg hygg, að hann hafi þar talað framar en hann hefir þekkingu til, því að þótt honum sje ef til vill kunnugt um vilja og álit Borgfirðinga í þessu efni, þá býst jeg við, að hann hafi ekki farið um landið alt og kynt sjer skoðanir manna hjer að lútandi. (P. O.: Jeg hefi lesið þingmálafundargerðirnar). Ef háttv. þm. (P. O.) hefir lesið þingmálafundargerðirnar, getur hann naumast komist á þessa skoðun. Annars er ókleift að komast að ákveðinni niðurstöðu um þjóðarviljann eftir þingmálafundargerðum, því að það er alkunnugt, hvernig þeir fundir eru sóttir og hvernig atkvæðagreiðsla fer þar fram. Nei, þessi skoðun háttv. þm. (P. O.) er líklega öllu heldur spunnin út úr eigin heila hans, sprottin af gremju, og miðuð við Borgfirðinga. Úti um landið skiftast skoðanir manna á líkan hátt og skoðanir fulltrúa þjóðarinnar á þingi í vetur. Og það er ekki heldur neitt ónáttúrlegt við það, því að við skyldum ætla, að við værum nokkurn veginn sæmilegur spegill af vilja þjóðarinnar. Og það má gera ráð fyrir, að í þessu efni sje vilji meiri hluta þjóðarinnar svipaður vilja meiri hluta þingsins. Jeg ætla raunar ekki að slá neinu föstu um það, hvort vilji meiri hluta þjóðarinnar sje eins og vilji meira hluta fjárveitinganefndarinnar í vetur. Hitt er víst, að á flestum fundum, sem jeg hefi sjeð fundargerðir frá, og á þeim fundum, sem jeg hefi haldið í mínu kjördæmi, kom fram svipuð skoðun og ríkti á aukaþinginu í vetur.
Háttv. 1. þm. N.-M. (J. J.) virtist álíta það skyldu sína að snúa sjer að einstökum kjördæmum og gat þess, að hann hefði kynt sjer fundargerðir úr Vestur Skaftafellssýslu, og að þar hefðu komið fram raddir á móti dýrtíðaruppbótinni. Það er rjett í því máli, að á tveimur af þeim fundum, sem jeg hjelt þar í vor, voru samþyktar tillögur, sem gengu í þá átt að fara gætilega í það að veita launabætur vegna dýrtíðarinnar, og var jeg alls ekki mótfallinn slíkum tillögum. Önnur tillagan gekk í þá átt, að dýrtíðaruppbót yrði að eins veitt þeim, sem nauðsynlega þyrftu hennar.
Á hinum fundinum var samþykt að fara varlega í uppbótarmálinu, og er síður en svo að jeg sje á móti því. En það var eins á þessum fundi og hinum, að alls ekki allir greiddu atkvæði um tillöguna.
Á fjölmennasta fundinum var engin tillaga samþykt í þessa átt. Að eins kom fram ein óánægjurödd, en að öðru leyti virtist enginn telja sæmilegt fyrir aukaþingið að gera annað en það gerði. Ef. háttv. 1. þm. N.-M. (J. J.) vildi, sjer til gamans, fara landveg heim, að þingi loknu, þá gæti hann kynt sjer skoðanir manna og sannfærst um, að það er rjett, sem jeg hefi sagt. Annars var það einkennilegt að heyra hann vera að tala um ljelega frammistöðu þingmanna í þessu máli í vetur, þar sem því hefir verið slegið föstu, að frammistaða hans hafi verið hin allra bágbornasta. Jeg get úr flokki talað um það, því að jeg starfaði með honum í fjárveitinganefnd. Þar hringsnerist hann um sjálfan sig. Var fyrst með hæstu upphæðinni, en, líklega eftir að hann þóttist hafa rannsakað vilja kjósenda sinna, gekk hann frá öllu saman.
Þetta vill hann nú ekki viðurkenna, en ber fyrir sig, að lítil breytingartillaga var ekki samþykt, brtt., sem hann kom með, en sá sig svo neyddan til að taka aftur, áður en hún kæmi til umr. í þinginu. Jeg held, að eftir atvikum hefði verið rjettast fyrir þennan hv. þm. (J. J.) að tala sem minst um frammistöðu sína á þinginu síðast.