07.07.1917
Neðri deild: 5. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 865 í B-deild Alþingistíðinda. (436)
16. mál, dýrtíðaruppbót handa embættis- og sýslumönnum landssjóðs
Skúli Thoroddsen:
Það er ekki mín sök, nje þeirra, sem eru sömu skoðunar og jeg, að umr. eru orðnar svo langar um þetta mál. Það eru hv. mótstöðumenn vorir, sem hafa leitt asnann inn í herbúðirnar. Hitt getur enginn láð oss, þótt vjer getum ekki leitt hjá oss alt það moldviðri af slagorðum og órökstuddum gífuryrðum, sem þeir láta hjer dynja.
Háttv. mótstöðumenn vorir vilja miða uppbótina við efnahag manna og framleiðslu. Þetta stafar af hinum mesta misskilningi. Hjer er að ræða um tvö spursmál, sem hvorugt kemur öðru við, og það af þeim ástæðum, sem nú skal greina. Landið borgar ákveðið verð fyrir ákveðið verk. Þetta verð er ákveðið fyrir mörgum árum, í peningum. Það þarf ekki að minna menn á að enginn lifir beint á gullinu, heldur þeim vörum, er fást fyrir gullið. Þegar vöruverðið hækkar, falla peningarnir í verði, og er þá sjálfsögð sanngirniskrafa, að starfsmönnunum sje goldið það tjón, er þeir bíða af verðfalli peninganna. Því eiga bæði starfsmenn landsins og einstakra manna heimtingu á. Eftir frv. er ekki öllum ætluð jafnhá uppbót tiltölulega, sem þó ætti að vera, ef grundvallarreglunni væri »konsekvent« framfylgt. En það leiðir af því, að launin eru svo misjöfn, að landið getur sagt við þá, sem hafa hærri launin: »Nú kreppir að, svo að jeg get ekki greitt yður eins mikið og skyldi. Með því að jeg hefi áður borgað yður svo mikið, að þjer hafið getað lagt upp, ætla jeg nú að borga þeim starfsmönnum um mínum meira, sem hingað til hafa lifað við sultarlaun«. Þetta sýnist mjer svo auðskilið, að jeg skil ekki, hvernig menn geta blandað þessu saman.
En að eigi beri að taka tillit til efnahagsins leiðir af því, að slíkt kemur eigi því verki við, sem unnið er fyrir landið. Jeg geri ráð fyrir, að t. d. kennara, eins og háttv. 1. þm. Reykv. (J. B.), þætti hart, ef hann væri skyldaður til að taka lægra kenslukaup, af því að hann er efnaður. Sú leið, að taka tillit til framleiðslunnar, er »praktiskt« óframkvæmanleg. Það er eigi hægt að fá ábyggilegar upplýsingar um, hvað græðist á framleiðslunni, t. d. hjá bændum. Og ef þeir þykjast tapa, þá væri »konsekvent« að bæta þeim það upp. Ekki er heldur hægt að taka tillit til ómagafjölda, og leiðir það beint af því, að þetta er engin hjálp, heldur borgun fyrir unnið starf.
Alt þetta stendur óhrakið, og verður eigi hrakið, þótt menn geti sagt hver eftir annan: Þetta er hjálp! Þetta er hjálp!
Tveir háttv. þingmenn hafa verið að hnýta í mig fyrir ræðu mína í gær. Þeim hefir virst jeg vera að álasa bændastjett landsins. Jeg hefi aldrei ætlað mjer, nje finn ástæðu til, að níða bændastjett þessa lands. En það sagði jeg, að bændur hjer á þingi væru stöðugt að berja lóminn, og við það get jeg staðið. Og hugsunargangur þeirra er svo undarlegur, að þeir fárast hvað mest um minstu upphæðirnar, sem ætlaðar eru ungum efnismönnum og listamönnum, og landssjóð munar ekkert um, en þá getur munað um alt sitt líf. Í þessa menn eru þeir stöðugt að narta. Þetta skal jeg standa við, og er eins gott, að þeir fái að heyra það.
Það er alveg rjett hjá vini mínum, háttv. 2. þm. Rang. (E. J.), að allir eigi að bera byrðina saman, en það á ekki að koma fram í því að gjalda ekki fult kaup fyrir unnið starf. Hjer gildir sama regla og á »normal«-tímum, að þeir efnaðri bera þyngri skattabyrðar. Hann sagði líka, að jeg hefði verið að hnýta í bændastjettina. Jeg get vísað til þess, sem jeg sagði áður um það. Hann sagði, að jeg hefði ekki fengist við búskap, og vissi því ekki, hvar skórinn krepti að bændum. Eftir greinum ýmsra bændaskörunga í blöðunum að dæma eru bændur altaf að tapa á framleiðslu sinni. Sje það rjett, þá er einber hjegómi að miða dýrtíðaruppbótina við framleiðslu. Tapi bændur á framleiðslu sinni, hljóta og prestar þeir, er búa sem bændur, að tapa á sama hátt. Er þá engin ástæða til að draga af prestunum uppbótina.
Sami háttv. þm. (E. J.) kvaðst vera í vafa um, hvort hann ætti að taka mark á mjer. Jeg bjóst ekki við því, að háttv. 2. þm. Rang. (E. J.) tæki mark á mjer. Það hefir ekki verið hans sterka hlið að taka mark á röksemdum. Hafi hann ætlað að fara til þess, mun hafa farið fyrir honum líkt og dýrinu, sem fór yfir Rín, og kom aftur eins og það fór. Annars er leiðinlegt að hlusta á hjal manna um þetta, hvað eftir annað.
Háttv. þm. Borgf. (P. O.) talaði um það, að ilt væri, að embættismenn fengju klyfjar gulls heim til sín, á meðan almenningur sylti. Jeg verð að álíta það ilt verk að ala á þessum hugsunarhætti, slá á þann streng, sem verstur er, en það er öfundsýkin; jeg hjelt, að nóg væri af þeim lesti í þjóðfjelagi voru, þótt ekki væru gerðar tilraunir til þess að ala á honum.