07.07.1917
Neðri deild: 5. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 870 í B-deild Alþingistíðinda. (438)

16. mál, dýrtíðaruppbót handa embættis- og sýslumönnum landssjóðs

Þorleifur Jónsson:

Það er svo langt síðan jeg bað mjer hljóðs, að flest hefir verið tekið fram af því, sem jeg hafði ætlað mjer að segja.

Það er eitt meðal annars, sem deilt hefir verið um, í hverja nefnd málinu skyldi vísa. Upphaflega var til þess ætlast, að málið gengi til fjárveitinganefndar; en þegar þess er gætt, að hún er mjög önnum hlaðin, en þetta mál hins vegar stórmál, þá virðist ekki ráðlegt að vísa frv. þangað. En nú vill svo vel til, að vjer höfum fengið nýja nefnd, bjargráðanefnd, sem á að ráða fram úr öllum dýrtíðarmálum. Þangað heyrir því þetta mál beint, en ef mönnum líkar það ekki, geri jeg það að tillögu minni að skipa sjerstaka nefnd í frv.

Annars skal jeg ekki fara mikið út í málið. Að vísu er það í fyrsta skifti, sem jeg tek til máls út af þessu máli. Þegar það lá fyrir þinginu í vetur, leiddi jeg það alveg hjá mjer, enda var því þá hraðað svo, að mönnum vanst ekki tími til að athuga það rækilega; enda bjóst jeg við, að færi gæfist að taka það til íhugunar nú á þessu þingi. En í Sþ. í vetur greiddi jeg þó atkvæði móti tillögunni, ekki af því, að jeg teldi ósanngjarnt að veita einhverja uppbót, heldur af því, að mjer þótti aðferð Ed. óviðeigandi.

Þetta hefir nú komið á daginn, svo að þjark um þetta mál hefir staðið í 3 daga. Meðhaldsmenn frv. hafa með frekju sinni espað mótstöðumennina, sem ekki hafa getað felt sig við það, að þeir fengju einir öllu að ráða um málið.

Mjer er nú sama, hvað hver segir, en það er áreiðanlega ekki ósk kjósenda landsins, að málinu verði ráðið til lykta á sama grundvelli sem í vetur; ekki svo að skilja, að almenningur sje mótfallinn allri uppbót, en þegar ætlast er til, að uppbótin nái til allra, einnig þeirra, sem eru stórríkir og hafa mjög mikla framleiðslu, þá er eðlilegt, að almenningur kynoki sjer við. Það er skylda þingmanna að gæta hófs bæði hjer sem ella, og ástandið, eins og það er, nær ekki að eins til þessara stjetta, heldur allra stjetta. Sannleikurinn er sá, að dýrtíðin sverfur nú að öllu landsfólkinu, svo að jafnvel þeir, sem talið var að hefðu grætt á stríðinu 1914 og 1915, neyðast nú ef til vill til þess að taka lán til framfæris sjer og sínum.

Alt þetta verður að taka til greina, enda vona jeg, að væntanleg nefnd geri það. Jeg vona enn fremur, að þeir, sem frekastir hafa verið í kröfunum, taki svo sönsum, að þeir sjái, að gæta verður sannsýni gagnvart þjóðinni.

Jeg lít svo á, að frv. sje miklu sæmilegra en þingsályktunartillagan var. En samt er jeg ekki ánægður með það. Jeg efast um það, að landið standi sig við að greiða uppbót af hærri launum en 3000 kr., og sömuleiðis virðist mjer, sem líta beri á það, hvort menn eru einhleypir eða fjölskyldumenn.

Viðvíkjandi því, hvernig menn líta á þetta mál, þá efast jeg ekki um það, að ef leitað væri umsagnar almennings, mundi mikill meiri hluti þjóðarinnar telja, að þinginu í vetur hafi tekist óhöndulega.

Því hefir verið kastað fram hjer, að bændur berðu sífelt lóminn og yrðu þannig til þess að hefta framgang þessa máls og annara nytjamála. Jeg skal ekkert segja um þetta, og ætla mjer ekki heldur að fara að rjettlæta bændur; en ekki sýnist mjer það hneykslanlegt, þótt framleiðendur vilji, að gætilega sje farið með fje landsins. Jeg fæ ekki sjeð, að þeir hafi beitt neinni ósanngirni í þessu máli nje öðrum; miklu fremur má segja, að þessi og þvílík ummæli verði til þess að vekja kala.

Að öðru leyti er málið svo þrautrætt, að jeg sje ekki ástæðu til þess að fara frekar út í það. Að eins vil jeg leggja nefndinni, hver sem hún verður, það á hjarta að fara varlega í sakirnar.