17.08.1917
Neðri deild: 36. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 903 í B-deild Alþingistíðinda. (452)

16. mál, dýrtíðaruppbót handa embættis- og sýslumönnum landssjóðs

Magnús Pjetursson:

Jeg get ekki stilt mig um að gera fáeinar aths., út af nefndarálitunum og því, er sagt hefir verið. Skal jeg ekki tala langt mál, því að háttv. frsm. minni hlutans (B. J.) hefir rakið málið allítarlega. En jeg verð að segja, að það verður gaman fyrir eftirkomendurna að lesa skjölin í þessu máli og bera saman. Þau eru nokkuð sundurleit, nefndarálit meiri og minni hlutans. Er jeg hræddur um, að þeir muni komast að þeirri niðurstöðu, að menn hafi haft allmisjöfn rök fyrir máli sínu.

Nefndarálit meiri hlutans er nokkuð sundurlausir þankar. Skal jeg ekki segja, hvort einstök atriði eru rjett eða ekki, en hitt er aðalatriðið, að grundvöllurinn sje rjettur, því að

»varðar mest til allra orða

undirstaðan rjett sje fundin«.

Eftir því, sem stendur í nefndarálitinu, kannast meiri hlutinn við grundvöllinn með nafninu, en byggir ekki á því og kallar uppbótina hjálp. Annars furðar mig mjög á því, hve fljótt sumum háttv. þm. hefir farið aftur. Eftir því, sem mjer skildist á háttv. frsm. meiri hlutans (S. S.), hefir hann verið dreginn lengra upp en hann vildi. (S. S.: Byrjar háttv. þm. Stranda. enn á útúrsnúningum og hártogunum). Mjer skildist sem hann hefði viljað halda sig neðar. Hann leiðrjettir þá næst, ef jeg fer skakt með.

Jeg held, að þótt háttv. frsm. meiri hl. (S. S.) hafi ekki viljað fara lægra, þá hafi honum þó farið aftur frá því vetur. Þá kom hann og, að mig minnir, háttv. þm. Borgf. (P. O.) og háttv. 1. þm. Reykv. (J. B.) fram með brtt., sem að vísu var svipuð að hundraðsgjaldi, en launahámarkið til uppbótanna var þar sett hærra og millibilsstiginn því hærri, svo að þar, sem þessir háttv. þm. vilja nú setja 10%, höfðu þeir þá 15%.

Líkt og hæstv. fjármálaráðherra (B. K.) tók fram, hefði verið eðlilegra að hækka nú %-gjaldið heldur en að lækka það. Jeg verð að segja það, að mig furðar stórlega á þessari afturför.

En það er í fleiri atriðum afturför en í þessu. Þessir háttv. þm., sem jeg nefndi áðan, fluttu einnig í vetur till. um að minka uppbótina við alla framleiðendur, en þá fóru þeir þó ekki lengra en svo, að þeir, sem hefðu 600 kr. í hreinan ágóða af framleiðslunni, skyldu missa ? af uppbótinni, en þeir, sem hefðu 1500 kr. hreinan hag af framleiðslunni, skyldu missa uppbótina alveg. Nú er tillaga þeirra sú, að framleiðendur að »verulegri framleiðslu« missi uppbótina alveg. Eftir þessum hugsunargangi get jeg ekki fengið annað út en að framleiðslan í ár hljóti að gefa miklu meiri arð en í fyrra, svo að rökrjettilega hefði þá átt að undanskilja alla framleiðendur. En nú er þetta einnig orðað svo óljóst og óskýrt í nál., að jeg held, að sjerstaklega stjórninni þyki þetta erfitt og ilt, að taka við slíkum fyrirskipunum, því að hvað meinar háttv. meiri hl. nefndarinnar með »verulegri framleiðslu«? Jeg held, að skilningurinn á því orði geti þvælst fyrir mönnum. Í tillögum þessara manna í vetur voru þó ákvæðin beint bundin við krónutal, sem var betra, þótt ófært sje í augum þeirra manna, sem ekki vilja leggja áherslu á framleiðsluna. Jeg er á þeirri skoðun, að ekki sæmi að refsa mönnum, sem framleiðslu hafa, og miklu síður nú en í vetur, því að aðstaða þeirra hefir síst batnað.

Jeg hefi að eins bent á þessi dæmi til þess að sýna, hvernig sömu mennirnir hafa skift um skoðun og gengið æ lengra og lengra í öfuga átt.

Ef eitthvað annað yrði ofan á en till. minni hl. nefndarinnar, þá mundi jeg helst kjósa till. háttv. þm. S.-Þ. (P. J.), því að ef þær yrðu samþyktar, þá mundi þó fremur verða vegur til samkomulags um breytingar við 3. umr.