24.08.1917
Neðri deild: 42. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 231 í B-deild Alþingistíðinda. (49)
1. mál, fjárlög 1918 og 1919
Atvinnumálaráðherra (S. J.):
Að vanda mun jeg reyna að vera ekki langorður, enda er það tæplega heiglum hent að vera næst næsti á eftir hinum málsnjalla og röksemdaríka framsögumanni, háttv. þm. Dala (B. J.), er gat haldið allri deildinni vakandi í því nær tvo klukkutíma, en jeg er enginn Nestor eða Odysseifur.
Stjórnin hefir ekki haft aðstöðu til að bera sig saman um till. háttv. fjárveitinganefndar, en það hefði þó verið æskilegt. Það, sem jeg segi nú, verður því að mestu mín sjerstaka skoðun á því, sem fyrir liggur.
Jeg vil fyrst taka það fram um 16. gr. fjárlagafrumvarpsins, er sjerstaklega fellur undir mitt starfssvið, að stefna stjórnarinnar, að hafa sem mest jafnvægi á tekjum og gjöldum í frumv. í heild sinni, var þess valdandi, að sumir gjaldaliðir í þessari grein voru ekki áætlaðir hærri en frumv. ber með sjer. Stjórnin hefði gjarnan viljað verja meiru fje til eflingar atvinnuvegunum, ef hún hefði talið, að fjárhagurinn eiginlega leyfði það.
Fjárhagsins vegna var það t. d. lagt til, að styrkur til búnaðarfjelaga væri að eins veittur annað árið, eins og í núgildandi fjárlögum. En þar sem háttv. fjárveitinganefnd hefir nú talið fært að hafa styrk þennan 20 þús. kr. hvort árið fyrir sig, er jeg síður en svo mótfallinn þeirri breytingartill. hennar. — En aftur er jeg ekki viss um, að öll þau búnaðarfjelög, er styrksins hafa orðið aðnjótandi, sjeu í búnaðarsamböndunum. En sjeu þau ekki öll í samböndunum, gæti það verið athugavert. Vona jeg, að nefndin athugi þetta atriði framvegis. Um tillöguna 157. er það að segja, að gleggra væri að tilgreina, að áhald það, sem þar er nefnt, væri eign landssjóðs, og má gera það við 3. umræðu.
Þá er brtt. 158. Þótt það sje satt, að b-liðurinn hafi verið tekinn upp í annað lagafrumvarp, er ekki sama að segja um staflið a., »til undirbúnings og rannsóknar vatnsvirkja«. Jeg vildi mælast til, að háttv. nefnd vildi lofa þeim lið að standa, nema svo sje, að Búnaðarfjelagið ætli að sinna þessu, en jeg held, að það hafi nóg við sitt fje að gera, svo að jeg óska, að a-liðurinn yrði settur inn aftur við 3. umræðu.
Um tillöguna 160 ætla jeg ekki að ræða mikið. Til stjórnarinnar kom beiðni frá sömu mönnum, sem þar eru nefndir og tekið höfðu að sjer »akkorð« á skurðinum í Miklavatnsmýri. Stjórnin vildi veita nokkurn hluta hins umbeðna, og þá helst í aukafjárlögum, en nú er komin ákveðin till. um að veita þetta í fjárlögunum, og vona jeg, að þeir, sem flytja hana, geri nánari grein fyrir henni.
Liðirnir l61 og 162 eru ekki frá fjárveitinganefnd, en aftur till. 163, um sandgræðsluna. Hygg jeg, að þessi styrkur hafi hingað til verið bútaður ofmjög niður og altof lítið fje veitt í heild sinni.
Um skóggræðsluna mun jeg ekki ræða í þetta sinn, en jeg býst við, að það hljóti að koma til álita, hvernig styrknum er varið, Er ekki ólíklegt, að brtt. verði til bóta, en víst er um það, að liðurinn er nú ekki sjerlega hár og hálfu lægri en skógræktarstjórinn fór fram á í tillögum sínum.
Þetta var viðvíkjandi landbúnaðinum, og þá kem jeg að þeim till., er lúta að sjávarútveginum. Jeg býst við, að flestum finnist uppfærslan á till. 174, við 16. gr., nokkuð há, 12 þús. úr 4 þús. kr. Það er nú ekki af því, að jeg sje svo orðsjúkur, að jeg óttist að vera talinn leggja ofeinhliða með landbúnaðinum, að jeg er þessari till. hlyntur, heldur af því, að hjer er um svo stórvægilegan atvinnuveg að ræða. Jeg get vel skilið, að ef upphæð þessi á að koma að gagni, þá megi hún ekki vera til muna minni. Um 177 lið, laun síldarmatsmanna, er þess að geta, að vel verður að vanda til þeirra manna. Þar er um svo mikið starf að ræða og um miljónir að tefla, og má ekki horfa í að launa það starf svo sæmilega, að hægt sje að velja úr mönnum til þess. Það er alveg satt, sem hv. frsm. (B. J.) hefir oft látið í ljós, að ef ætlast er til, að starf sje rekið vel, og að heimta megi fylstu alúð, verður að launa vel, og það er einhver hinn háskalegasti sparnaður að skera slíkt um of við neglur sjer. Auðvitað getur þetta gengið úr hófi, en svo er ekki hjer. Jeg felli mig yfirleitt vel við, að nefndin óttast ekki svo mjög tekjuhalla, sem stafi af því, að hún vill auka framlög til atvinnuveganna.
Jeg vil mæla með 183. lið, að veita beinlínis styrk til að reisa gistihús í Fornahvammi. Þessi bær liggur undir fjölförnum heiðarvegi, þar sem langt er til annara bæja, og er þrautalending ferðamönnum. Jeg hefi reynt það sjálfur nokkrum sinnum. Jeg veit, að þar er alt á fallanda fæti og landsnytjar mjög rýrar, en erfitt að byggja þá jörð upp af landbúnaðargróða.
Jeg mun svo ekki segja fleira um sinn, þótt jeg ef til vill sjái ástæðu til að athuga síðar einstakar brtt, sem ekki eru frá nefndinni.