24.08.1917
Neðri deild: 42. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 248 í B-deild Alþingistíðinda. (53)
1. mál, fjárlög 1918 og 1919
Einar Arnórsson:
Við þingmenn Árnesinga höfum leyft okkur að koma fram með, á þgskj. 565, viðaukatill. við 16. gr. 3. um, að tveim heiðursmönnum, þeim Ágústi Helgasyni, óðalsbónda í Birtingaholti og Gesti Einarssyni, óðalsbónda á Hæli, sje veitt 6000 kr. uppbót á »akkorði« um skurðgröft í Miklavatnsmýri.
Þessu máli er svo farið, að 1916 tóku þessir tveir menn að sjer mestan hluta áveitugerðarinnar fyrir 13,000 kr., en útkoman varð sú, að verkið kostaði þá tæp 23,000 kr., og varð tap þeirra 9798 kr. Út af þessu sneru þeir sjer til stjórnarinnar í vetur, en hún sendi erindi þeirra vegamálastjóranum. Hann lýsir yfir því, að verkið hafi orðið miklu dýrara en áætlað var, en kemst að þeirri niðurstöðu, að einungis einn liðinn beri að bæta þeim upp, það er að segja hækkunina á verkalaunum. Lagði hann til, að þeim væru greiddar 3,500 kr., og tók stjórnin þá fjárupphæð í fjáraukalögin 1916—17, og fóru þau hjeðan úr deild með þessa upphæð. En þótt hún verði og samþykt í háttv. Ed. þá vantar þó enn 6298 kr. upp á, að þeir fái skaða sinn að fullu bættan. Við höfum nú farið fram á, að þeir fái 6000 kr., og býst jeg við, að þessir heiðursmenn mundu við það una, þótt eigi fengju þeir meira.
Eins og jeg tók fram áleit vegamálastjórinn, að kostnaður hefði farið allmikið fram úr áætlun. Nokkur hluti verksins var unninn beint af landssjóði, og fór kostnaður af því allmikið fram úr áætlun, svo sem átti sjer stað um önnur verk, sem unnin voru fyrir almannafje 1916.
Það eru fleiri ríkar ástæður fyrir því, að verkið varð svo dýrt, en ein saman hækkun verkalauna. Liggja þær sumpart í því, að áætlanir þær, er fyrir lágu, þegar samningurinn var gerður, voru oflágar. En það mun hafa komið af því, að verkfræðingurinn, sem áætlanirnar gerði, hafi ekki getað tekið öll atvik til greina. Árið 1916 voru kuldar og frost í jörðu langt fram eftir vori. Varð því byrjað seinna á verkinu en til var ætlast, og því unnið minna um vorið en ella. Þar af leiðandi var meira eftir óunnið til haustsins. En vegamálastjóri gekk allfast eftir, að verkinu væri þá lokið. Um haustið komu miklar rigningar og vatn hljóp í skurðina; tafði það mjög fyrir verkinu, og varð það verra og dýrara en við hafði verið búist.
Þá bar og það óhapp að höndum, að vorið 1916 gengu mislingar um þær slóðir, og var fyrir þá sök verra að fá verkamenn en annars.
Af þessu má sjá, að svo má segja, að óhöppin hafi steðjað að, og að verkið hafi því orðið dýrara og mennirnir ver úti en gera hefði mátt ráð fyrir. Það virðist því sanngirniskrafa, að þeim sje bætt meira upp, en gert er í fjáraukalögunum.
Til samanburðar má geta þess, að þetta er ekki nýtt, sem hjer er farið fram á. Í fjáraukalögum frá þinginu 1915 er einn samskonar liður, sem sje uppbót á kaupi fyrir byggingu pósthússins í Reykjavík. Þeir, sem fyrir verkinu stóðu, urðu fyrir ófyrirsjáanlegum óhöppum og verðhækkun, vegna styrjaldarinnar, og það var þeim bætt svo að segja að fullu. Vænti jeg því, að öllu þessu athuguðu, að málaleitan okkar verði vel tekið.
Þá mun jeg fara fáum orðum um brtt. á þgskj. 532,78, um laun aðstoðarskjalavarðarins við Landsskjalasafnið. Háttvirt nefnd hefir breytt frá því, sem í stjórnarfrumv. stendur, þannig að hún ætlast til þess, að styrkurinn til vísindastarfsemi hans hækki um 400 kr. frá því, sem stjórnin ætlaðist til, en að launin fyrir starf hans við Landsskjalasafnið lækkuðu um sömu upphæð. Hv. nefnd hefir líklega ekki verið kunnugt, af hvaða ástæðum stjórnin skiftir fjenu niður eins og hún gerði. En svo stendur á því, að þegar reglugerðinni fyrir Landsskjalasafnið var breytt 13. janúar 1916, þá voru kröfurnar til starfs þessa manns á safninu stórauknar. Eftir eldri reglugerðinni var ekki skylt að halda safninu opnu síðara hluta dags, en eftir nýrri reglugerðinni er það gert að skyldu. Skjalavörður áleit með rjettu, að ekki væri sanngjarnt að heimta miklu meira starf af aðstoðarskjalaverðinum fyrir sama kaup sem áður. Fór hann því fram á, að hann fengi sama kaup sem fyrsti bókavörður á Landsbókasafninu. Þótti aðstoðarskjalaverði vissara, að þessu væri þannig hagað, og býst jeg við að það hafi orðið að samkomulagi milli hans og núverandi stjórnar, að launin væru hækkuð, en vísindastyrkurinn lækkaður að sama skapi. Þetta hefir enga þýðingu fyrir fjárhaginn, en af að því jeg veit ekki, hvort hv. nefnd er það kunnugt, hefi jeg leyft mjer að benda á það.
Um 133. lið hefir það verið tekið fram, hvernig á því stendur, að dr. Helgi Jónsson á að fá fje þetta, og er það hárrétt, sem háttv. 2. þm. N.-M. (Þorst. J.) skýrði frá, um tillögur bjargráðanefndar um það mál.
Um styrkinn til skálda og listamanna hafa þeir háttv. framsm. (B. J.) og háttv.
2. þm. N.-M. (Þorst. J.) talað svo fagurlega, að jeg hefi þar eiginlega engu við að bæta. Að eins þætti mjer gott að vita, vegna till. háttv. 1. þm. Árn. (S. S,), hvort stjórnin kjósi heldur, að aths. aftan við skáldastyrksliðinn sje látin halda sjer, eða feld burt.
Svo er hjer ein viðaukatillaga, sem mjer þykir töluvert skemtilegt að sjá, þótt eigi geti jeg talið mig sjerfræðing í þeirri grein, sem þar ræðir um. Það er till. á þgskj. 545, um að veita Árna G. Eyland alt að 10,000 kr. lán, til að stofna hjer og reka fyrirmyndarbúskap í jarðrækt. Mjer þætti skemtilegt, ef hægt væri að styrkja efnilega menn til að setja upp fyrirmyndarbúskap, og eins og tillagan er orðuð hygg jeg, að hættulaust sje fyrir landssjóð, að lánveiting þessi sje samþykt, þar sem til er ætlast, að lánið veitist gegn ábyrgð sýslunefndar, þar sem búið er stofnað, eða annari tryggingu, er stjórnin tekur gilda. Ef sýslunefnd gengur í ábyrgð fyrir láninu, þá ætti ekki að vera hætta á, að landssjóður biði tjón, og sje um aðra tryggingu að ræða, þá mun mega treysta því, að landsstjórnin taki þá eina gilda, er örugg sje. En ef maðurinn er nýtur og starfi sínu vaxinn, þá mundi tilraun þessi geta haft talsverða þýðingu. Jeg skoða þetta sem tilraunafyrirtæki, og hefir Búnaðarfjelag Íslands veitt nú nýlega styrk til svipaðs fyrirtækis, þar sem það styrkir stofnun og rekstur fjárræktarbús. Væri þessi lánveiting í samræmi við það.
Ýmsir góðir menn hafa stungið upp á því; að eitthvað væri gert í þessa átt, með því að sett væru upp á nokkrum stöðum tilrauna- og fyrirmyndarbú.