01.09.1917
Efri deild: 45. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1012 í B-deild Alþingistíðinda. (553)
153. mál, vitagjald
Magnús Torfason:
Jeg þarf ekki að eyða mörgum orðum til þess að svara háttv. frsm.
(H. St.); jeg sje, að hann er mjer í hjarta sínu samþykkur.
Jeg sagði aldrei, að hækkun þessi ætti að vera rángjald, og því síður það, að með henni skyldi fæla útlendinga frá landinu.
Annars vil jeg minna hv. þm. (H. St.) á frv., sem var hjer til umr. í vetur, um að hækka síldartoll um 3 kr., til þess að geta náð sjer niðri á útlendingum. — Hækkun sú, sem nú er um að ræða, mundi verka eins og það frv. átti að verka, þannig, að tekjur ykjust án þess, að það kæmi verulega niður á landsmönnum.
Jeg ætlaðist ekki til þess, að hækkunin gæti vegið á móti kostnaðinum öllum, en hitt finst mjer rjett, að láta gjaldið höggva svo stórt skarð í hann sem auðið er.