01.09.1917
Efri deild: 45. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1015 í B-deild Alþingistíðinda. (557)

153. mál, vitagjald

Magnús Kristjánsson:

Mjer var fyrir löngu kunnugt um, að háttv. 1. þm. Rang. (E. P.) var tvent í senn, bæði sparnaðarmaður og ötull til aðfanga fyrir landssjóð. En þó að þetta sjeu hvorttveggja lofsverðir kostir, þá mega þeir ekki fara út í öfgar.

Mjer finst það vera fjarstæða, sem háttv. þm. (E. P.) sagði, að síminn hefði borgað sig á einu ári. Mjer vitanlega borgaði hann ekki stofnkostnaðinn á fyrsta árinu. (E. P.: Jeg hefi ekki sagt á fyrsta árinu). Orð háttv. þm. (E. P.) urðu ekki skilin á annan hátt. En úr því að háttv. þm. (E. P.) fór að minnast á símann og þann arð, sem hann hafi fært í aðra hönd, þá vildi jeg geta þess, að gripið hefir verið til ýmsra ráða, sem ekki geðjast almenningi, til þess að ná þeim mikla hagnaði, sem af símanum hefir orðið. Jeg á þar við hraðsamtöl og forhraðsamtöl, sem eru algerlega órjettlát og valda því, að almenningur getur ekki haft fult gagn af símanum. Í slíku og öðru eins verður altaf að gæta hófs.

Sama máli er að gegna um vitana. Vjer megum ekki búast við, að þeir borgi kostnaðinn þegar í stað. Hitt er annað mál, að þegar vitakerfið er komið í gott horf, munu vitarnir veita landinu tekjur, og þá mun þetta fyrirtæki borga sig á svipaðan hátt og síminn.

Þetta ætti háttv. 1. þm. Rang (E. P.) að skilja, ef hann bæri það saman við önnur fyrirtæki, sem hann hefir barist fyrir í sínu kjördæmi eða þar í grendinni, t. d. sandgræðslu, Flóaáveituna eða fyrirhleðsluna í Þverá. Þó að við greiðum atkv. með fjárveitingum til þessara fyrirtækja, þá gerum við það ekki í þeirri von, að þau borgi sig þegar í stað, heldur af hinu, að við væntum, að þau borgi sig einhvern tíma í framtíðinni. Eins er um vitana. Þeir geta borgað sig, þó að það verði ekki þegar í byrjun, svo að þeir geti staðið straum af sjálfum sjer í framtíðinni.

Jeg skal ekki fjölyrða frekar um þetta mál. En með því að jeg er nú bráðum dauður, get jeg ekki svarað því, sem fram kann að koma í málinu hjer eftir, en vona, að jeg geti dáið rólegur fyrir því, að röksemdir háttv. 1. þm. Rang. (E. P.) um þetta mál munu hvorki sannfæra mig nje aðra.