17.08.1917
Neðri deild: 36. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1032 í B-deild Alþingistíðinda. (583)

5. mál, lögræði

Frsm. (Einar Arnórsson):

Eins og háttv. þingdeild er kunnugt þá er þetta frv. komið frá stjórninni, og er það samið af prófessor Lárusi H. Bjarnasyni. Háttv. Ed. hefir haft frv. til meðferðar og ekki gert á því aðrar efnisbreytingar en þær, að hjú skuli eigi að sjálfsögðu vera óhæf til lögráðamensku. Stjórnin breytti frv., eins og það var frá hendi höf., að því leyti, að dómstólarnir eiga eftir stjórnarfrv. einkaúrskurðarvald um sviftingu lögræðis. Þessar breytingar fellst nefndin á.

Öðru máli gegnir um aðrar breytingar, sem orðið hafa á frv. í háttv. Ed. Það er svo ástatt, að frv. hefir að geyma ákvæði, sem áður er ekki til orð yfir í lagamáli voru. Það má því segja, að ágreiningurinn sje að eins um orð. En hjer er þó um meira að ræða en venjulegan ágreining um orð, því að hjer er að ræða um lögheiti, er festa á í máli voru.

Í frv. stjórnarinnar var notað orðið »lögræði«, og táknaði það hæfileikann til að ráða sjálfur fyrir sjer og fje sínu. Þessu hefir háttv. Ed. breytt í »lögráð«, eins og menn munu kannast við. Á sama hátt hefir háttv. Ed. farið með orðin sjálfræði og fjárræði, breytt þeim í sjálfsráð og fjárráð, og búið til af þessu lýsingarorðin: lögráða, sjálfsráða, ólögráða, sjálfsóráða, fjáróráða o. s. frv. Þessar breytingar getur nefndin ekki felt sig við og telur hin orðin vera betri, þótt segja megi, að alt kunni að vera málfræðilega rjett. Flestar breytingar nefndarinnar stafa því af því, að hún vill halda lögheitum stjórnarfrv.

Heiti stjórnarfrv. tel jeg betra, bæði frá málfræðilegu og lögfræðilegu sjónarmiði. Næstum allar brtt., sem nefndin leggur til að verði gerðar á frv., eru orðabreytingar, eins og háttv. þm. sjá af þgskj. 415. Um verulegar efnisbreytingar er ekki að ræða. Þm. geta gert sjer grein fyrir breytingunum, ef þeir bera saman nál. á þgskj. 414 og brtt. á þgskj. 415. Það væri endurtekning á nál. að fara að tala meira um þetta, og vil jeg því að öðru leyti vísa háttv. deildarmönnum til þess.