01.08.1917
Neðri deild: 22. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1045 í B-deild Alþingistíðinda. (613)
6. mál, þóknun til vitna
Forsætisráðherra (J. M.):
Jeg hefi í raun og veru ekkert að athuga við breytingar nefndarinnar. Þær eru svo lítilfjörlegar, að engin ástæða er til að gera þær að ágreiningsmáli, þótt deila megi um það, hve nauðsynlegar þær eru. Jeg skal að eins geta þess, að stjórnin hafði ekki ætlast til þess, að ákvæði frv. næðu til óstefndra vitna. Gengið var út frá því, að samkomulag gæti orðið milli stefnandans og vitnisins um þóknun fyrir ómakið. Vitnið getur þá altaf afsagt að mæta, nema það fái hæfileg ómakslaun. Ekki svo að skilja, að jeg telji neitt á móti því, að sama sje látið ganga yfir óstefnd vitni eins og önnur. Jeg get því vel sætt mig við, að brtt. verði samþ., en mjer finst hún eiginlega óþörf.
2. brtt. er um lækkun ferðakostnaðarins. Hún er að vísu í samræmi við það, sem stjórnarfrv. var upphaflega. En úr því að háttv. Ed. var búin að gera þessa breytingu, þá hefði jeg satt að segja kunnað betur við, að þar við hefði setið. En það er eins með það og hina tillöguna. Hún er ofsmávægileg til að gera hana að ágreiningsatriði, þótt jeg verði að játa, að ferðakostnaðarþóknunin sje engan veginn ofhá, eins og háttv. Ed. hefir gengið frá henni.
Þá er 3. brtt., um bókunina. Það er svo sem auðvitað, að hún yrði stutt og fyrirhafnarlítil. En jeg hafði hugsað mjer, að dómarinn tæki vitnalaunin, ásamt öðrum gjöldum, er að rjettarhaldinu lúta, og að hann borgaði vitnunum samstundis. Þá hefði ekki þurft að bóka neinn úrskurð. Jeg sje, að þetta getur haft dálitla þýðingu að einu leyti, að geta sjeð, hvað vitnunum hefir verið borgað. Það getur verið gott, þegar ákveða á málskostnað eftir á, þegar dómur fellur í málinu og annar hvor aðili er dæmdur til að greiða málskostnað. Þá þarf ekki annað en fletta upp í þingbókinni til að sjá, hve mikið hefir verið greitt í vitnalaun, ef það er bókað. Sem sagt eru allar brtt. svo vaxnar, að engin ástæða er til að vera á móti þeim, nema ef vera skyldi till. um lækkun ferðakostnaðarins. Jeg vona því, að frv. fái góðan byr.