01.08.1917
Neðri deild: 22. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1047 í B-deild Alþingistíðinda. (615)

6. mál, þóknun til vitna

Forsætisráðherra (J. M.):

Háttv. frsm. (E. A.) hefir víst ekki heyrt það, sem jeg sagði. Jeg sagði, að ekki gerðist þörf að bóka vitnalaunin, ef þau eru borguð í rjettinum. Jeg skil 4. gr. svo, eins og hún er orðuð í brtt. nefndarinnar, að bókun skuli ávalt fara fram. En það er svo sem ekkert hættulegt, þó að það sje gert að skyldu að færa þetta ávalt inn í bók. Að því leyti til er óþarfi að ræða þetta mál frekar.