11.08.1917
Efri deild: 28. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1049 í B-deild Alþingistíðinda. (621)

6. mál, þóknun til vitna

Karl Einarsson:

Jeg vil leyfa mjer að gera stutta athugasemd við brtt. á þgskj. 372.

Mjer virðist fyrsta brtt. vera óþörf til þess að útiloka vitni, sem kemur af sjálfsdáðum, frá því að fá þóknun. Vitni yrði tæplega tekið til greina í einkamálum, nema það kæmi að tilhlutun annars málsaðila.