04.07.1917
Efri deild: 2. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1053 í B-deild Alþingistíðinda. (633)
9. mál, sjúkrasamlög
Forsætisráðherra (J. M.):
Það hefir komið í ljós, að sjúkrasamlögin hafa ekki getað borið sig, þrátt fyrir að tillagið úr landssjóði hefir verið hækkað. Þó hafa þau leitað sjer tekna á ýmsan hátt, svo sem með tombólum, gjöfum og happdrætti. En samt hefir því farið svo fjarri, að sjúkrasamlögin hafi getað safnað fje í varasjóð, að tekjurnar hafa ekki hrokkið fyrir gjöldunum. En það er skoðun manna, sem vit hafa á þessu máli, að það sje mjög mikilsvert, að þesskonar fjelagsskapur geti þrifist hjer á landi, og hefir ráðuneytið einnig verið þeirrar skoðunar. Þetta frv. er því fram komið eftir tillögu Georgs hagfræðings Ólafssonar, er hefir aðstoðað stjórnina um málið. Farið er fram á það í frumvarpinu, að landssjóður borgi ¼ hluta sjúkrahússkostnaðarins, því að í honum eru aðalútgjöldin vitanlega fólgin.
Þá er annað aðalatriðið í frv., að fjelagar gjaldi sjálfir fyrir ¼ hluta lyfja, er þeir nota utan sjúkrahúss. Eins og mönnum er kunnugt eru lyf mjög dýr um þessar mundir og lyfjakostnaðurinn því þungur á samlögunum. En menn hafa þóst verða þess varir, að ýmsir hlífðust lítið við að heimta lyf, er þeir komast hjá að greiða fyrir þau sjálfir. Er því ástæða til að ætla, að auðveldara verði að hafa hemil á mönnum í þessu efni, ef frv. næði fram að ganga.
Jeg álít, að þó að hjer sje um fjármál að ræða, eigi þetta mál helst heima hjá allsherjarnefndinni. Jeg ætla þó ekki að gera það að till. minni, að því sje vísað til hennar, að svo stöddu, því að jeg sje, að beðið hefir verið um orðið, og þá aðrar till. ef til vill væntanlegar.