12.07.1917
Efri deild: 7. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1058 í B-deild Alþingistíðinda. (650)

9. mál, sjúkrasamlög

Halldór Steinsson:

Þetta mál varð fyrir talsverðu hnjaski síðast, þegar helmingur háttv. deildarmanna greiddi atkv. með sjerstakri nefnd, en annar helmingur á móti því, að málið væri sett í nokkra nefnd.

Fyrir þeim, er skipa vildu sjerstaka nefnd, vakti það, að til þeirrar nefndar mætti vísa öðru heilbrigðismálefni, er von var á í deildinni; mætti þá skoða þessa nefnd sem almenna heilbrigðisnefnd fyrir deildina. En þar sem nú vissa er fengin fyrir því, að þetta mál kemur ekki fram í bráð, en frv. um sjúkrasamlögin fyllilega þess vert, að það verði athugað, þá vil jeg fyrir mitt leyti ekki gera að neinu kappsmáli, í hvaða nefnd það verði sett. En það virðist liggja beinast við, að því verði vísað til allsherjarnefndar.