12.07.1917
Efri deild: 7. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1058 í B-deild Alþingistíðinda. (651)
9. mál, sjúkrasamlög
Guðjón Guðlaugsson:
Jeg skal leyfa mjer að stinga upp á, að kosin verði sjerstök nefnd í málið, vegna þess, að jeg álít, að hjer sje engin nefnd, sem eigi sjerstaklega við, en hvað hitt málið snertir, sem verið var að tala um, þá kemur það alveg eins fyrir háttv. deild, þótt síðar verði. Vitanlega er það helst allsherjarnefnd, sem við á í þessu máli, en með því að hún er fullhlaðin störfum, og mál þetta er sjerstaks eðlis, þá vil jeg gera það að uppástungu minni, að kosin verði sjerstök nefnd.