27.07.1917
Efri deild: 16. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1059 í B-deild Alþingistíðinda. (655)

9. mál, sjúkrasamlög

Frsm. (Kristinn Daníelsson):

Jeg get verið fáorður um mál þetta; jeg skal leyfa mjer að skírskota til aths. þeirra, er fylgja frv., og þess, sem jeg sagði í upphafi þessarar umr.

Aðalatriði frv. er, að löggjöf og landssjóður styrki sjúkrasamlögin, sem eru góð og gagnleg, svo að þau komist sem víðast á fót.

Hjer er farið fram á að styrkja þau á þann hátt, að landssjóður greiði ¼ hluta af sjúkrahússkostnaði samlaganna, og til þess að efla samlögin betur fer frv. enn fremur fram á, að samlagsmenn verði sjálfir að greiða nokkuð, eða ¼ hluta, af lyfjum þeim, er þeir fá utan sjúkrahúss. Jeg hefi að vísu heyrt nokkrar raddir á móti því, að samlagsmenn verði að greiða þennan hluta af lyfjunum, en jeg hygg, að þessi kostnaður sje ekki svo tilfinnanlegur, að það geti staðið samlögunum fyrir þrifum. Þegar þess er gætt, að samlögin greiða allan sjúkrahússkostnað og ¾ hluta af lyfjakostnaði utan sjúkrahúss, þá hljóta menn að sjá, hvílíkt hagræði það er og hagnaður að vera í þeim. Og ef ástæða þykir til, þá er hægur hjá að breyta þessu síðar.

Nefndin leggur til, að frv. sje samþ. óbreytt að efni til, en ber að eins fram tvær brtt. við það.

Hin fyrri er um að fella burt tvær fyrstu málsgreinarnar í 2. gr. frv. Nefndin telur þetta óþarft, því að í 1. gr. laga nr. 39, 11. júlí 1911, um sjúkrasamlög, er þetta atriði tekið fram sem skilyrði fyrir, að sjúkrasamlag verði lögskráð, og síðari brtt. nefndarinnar er afleiðing af hinni.

Jeg vona, að háttv. deild samþ. frv.