20.08.1917
Neðri deild: 38. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1067 í B-deild Alþingistíðinda. (678)

10. mál, fiskiveiðasamþykktir og lendingasjóður

Frsm. (Björn Stefánsson):

Í frv. þessu felast engin laganýmæli, svo að teljandi sje, en það dregur saman í eina heild ekki færri en 8 eldri lög og lagabreytingar. Er það út af fyrir sig næg ástæða til þess, að því sje vel tekið. Nefndin hefir samt jafnframt viljað gera á því nokkrar breytingar til bóta. Efnisbreytingar geta þær samt tæplega talist.

Í stjórnarfrv. var stærsta breytingin frá gildandi lögum það, að hámark lendingasjóðsgjalds var fært upp í 5 af hundraði.

Háttv. Ed. færði það aftur ofan í 2 af hundraði. Meiri hluti nefndarinnar hjer í Nd. þótti þetta enn ofhátt og vildi færa það niður í 1%. Tveir af okkur vildu láta þetta standa, eins og það kom frá háttv. Ed., en var þó ekki svo mikið kappsmál um það, að við vildum fara að kljúfa nefndina. Um það vorum við allir sammála, að í stjórnarfrumvarpinu væri þetta altof hátt ákveðið.

Þar sem margir sækja að einni verstöð til að róa þar lengri eða skemri tíma, þá gæti farið svo, þegar þeir rjeðu sig, að þeir athuguðu ekki þetta háa lendingasjóðsgjald, en tækju fyrst eftir þessum háa skatti, þegar þeir færu að gera upp og halda heim.

Við vorum sammála um að vilja ekki leyfa neinni verstöð að leggja svo háan skatt á þá, er þangað sækja til að leita sjer bjargar.

Helsta breytingin á gildandi lögum er sú, að afnema að miða lendingasjóðsgjaldið við hlut. Ástæðurnar eru þær: 1. að engin viss regla er það, að afli eða ágóði af útgerð standi í rjettu hlutfalli við stærð skips; 2. þessi stærri skip borga hærri hafnarsjóðsgjöld og vitagjöld, og álítur nefndin ekki rjett að miða lendingasjóðsgjald einnig við stærðina eina; því leggur nefndin til, að það sje miðað við hundraðsgjald af aflanum og ekkert annað.

Önnur brtt. nefndarinnar er það, að hún vill, að hægt sje að krefja um lendingasjóðsgjald þótt um styttri tíma sje að ræða en heila vertíð, enda er mjög mismunandi, hvað kallað er vertíð og hvað þær eru langar á ýmsum árstímum og í ýmsum landshlutum.

Að svo mæltu skal jeg leyfa mjer að mæla með því, að frv. verði samþ. með brtt. nefndarinnar.