05.07.1917
Efri deild: 3. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1085 í B-deild Alþingistíðinda. (724)
17. mál, slysatrygging sjómanna
Atvinnumálaráðherra (S. J.):
Jeg bið háttv. Ed. afsökunar á því, að jeg get ekki gert eins góða grein fyrir frv. þessu og skyldi.
Jeg vonast til að fá tækifæri til að fara frekari orðum um það síðar. Jeg vil þó taka það fram strax, að hjer er um að ræða þýðingarmikið atriði af merkustu þjóðmálum vorum, þar sem er trygging vissrar stjettar.
Till. og frv. um mál þetta hafa að vísu verið lögð fyrir Alþingi áður, og eru enda til nokkur ákvæði um tryggingu sjómanna. Má þar benda á, að á Alþingi 1915 var samþykt þingsályktunartillaga, þar sem skorað var á stjórnina að rannsaka möguleikann til slysatrygginga yfirleitt.
Helst til lítið hefir þó orðið úr framkvæmdum í máli þessu. Er það reyndar vorkunnarmál þótt seint vinnist, því að málið er erfitt og umfangsmikið og ilt til rannsókna, og þar auki við litla sem enga innlenda reynslu að styðjast. Þess vegna hefir stjórnin látið sjer nægja að taka fyrir þessa einu stjett, að svo stöddu.
Markmiðið er þó að koma á lagaákvæðum um slysatryggingar í sem ríkustum mæli. Og er það líka í fullu samræmi við áhuga alþjóðar fyrir tryggingum, sem fer sívaxandi.
Þetta frv. fer nokkru lengra en fyrri ákvæði, einkum í því, að hjer eru ætluð hærri iðgjöld fyrir slys, sem valda dauða, og talsvert fje áætlað fyrir slys, sem gera menn ófæra til vinnu.
Frv. þetta er að miklu leyti bygt á fornum grundvelli og er ekki margbrotið. Mun því síður bætt við, að erfitt þyki að framfylgja því eða fella sig við það.
Stjórnin væntir þess, að háttv. Alþ. taki mál þetta til góðrar og ítarlegrar meðferðar, þar sem það liggur í augum uppi, hve þýðingarmikið það er.
Vil jeg svo leyfa mjer að gera það að till. minni, að málinu verði vísað til 2. umr., og sömuleiðis, að því verði vísað til sjávarútvegsnefndar, þar eð það snertir einkum sjómennina.