30.08.1917
Neðri deild: 47. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í B-deild Alþingistíðinda. (74)
1. mál, fjárlög 1918 og 1919
Þórarinn Jónsson:
Jeg á alls 3 brtt., á þgskj. 692, 689 og 669.
Brtt. á þgskj. 669 er frá mjer og hv. 1. þm. Skagf. (M. G.). Hún er fram komin vegna annarar brtt., sem meiri hluti samgöngumálanefndar flytur, um brú á Hofsá í Vopnafirði. Fyrst kom fram hjer í deildinni frv. um brýr á Hofsá og Selá. Það lá fyrir samgöngumálanefnd, og varð niðurstaðan sú, að nefndin vildi koma Hofsá inn í fjárlögin. Jeg og nokkrir fleiri nefndarmenn voru á móti þessu. Mjer finst ekki koma til mála að fara að veita fje til brúar á Hofsá nú, og það af þeim ástæðum. Í fyrsta lagi er ekki fyrir hendi neitt álit frá vegamálastjóra um þetta mál. Í öðru lagi er brúin á sýsluvegi. Og í þriðja lagi hafa ýmsar brýr, sem vegamálastjórinn mælir með að þegar verði gerðar, ekki verið settar í fjárlögin nú. Meðal þeirra er fyrst og fremst brúin á Miðfjarðará. 1913 bar jeg fram þingsál.till. um, að brúarstæði á þeirri á væri rannsakað og kostnaðurinn áætlaður. Þetta var gert, og teikning af brúnni og kostnaðaráætlun er löngu tilbúið, en brúin þó komin enn í fjárlögin. Í áætlun vegamálastjórans 1915 var Eyjafjarðarbrúin talin fyrst, þá brú á Miðfjarðará, þá brú á Jökulsá, þá brú á Hjeraðsvötnum. Nú er Eyjafjarðarárbrúin tekin í fjárlögin og fyrri borgun til Jökulsárbrúarinnar, og skal jeg engum ágreiningi út af því valda, þótt Jökulsárbrúin sje að þessu leyti látin ganga á undan Miðfjarðarárbrúnni, þar sem telja má víst, að báðar komi í næstu fjárlög. En af því, að samgöngumálanefnd vildi bæta Hofsárbrúnni í hópinn, komum við með þessa brtt., því að það getur engum efa verið undir orpið, að Miðfjarðará á að ganga fyrir. Það er alkunna, að þetta vatnsfall hindrar einatt póstgöngur; stundum verða póstar að bíða við ána og stundum er póstflutningnum mikil hætta búin, þegar lagt er í ána. Það ætti því engum að koma til hugar að taka á undan brú á óþektri á, sem álit vegamálastjórans er ekki til um. En þar sem nú er örðugt um byggingu brúa, þá munum við taka aftur brtt. okkar, ef brtt. á þgskj. 647 verður feld. En þegar svona stóð á, var ekki hægt annað en að bera hana fram. Hvað snertir brú á Hjeraðsvötnum skal jeg að vísu fallast á, að hún komi á eftir brú á Jökulsá. En þar stendur samt sjerstaklega á. Hjeraðsvötnin eru altaf að breyta sjer. Svifferja er í póstleiðinni á aðalálnum. En hinir álarnir eru altaf að dýpka, svo að þeir eru að verða næsta örðugir yfirferðar og geta oft talist ófærir; því að álitlegt getur ekki talist að sundríða jökulvatn á söndum og sandbleytu. Á því getur ekki leikið nokkur vafi, að brú á Hjeraðsvötnum eigi að ganga fyrir Hofsárbrúnni. Brtt. okkar er ekki borin fram í því skyni að íþyngja landssjóði, eins og jeg hefi áður tekið fram, heldur af því, að fylsta sanngirni mælir með, að þessar brýr verði teknar í fjárlögin, ef nokkrum verður bætt við.
Þá er brtt. á þgskj. 689, um að bæta skólanum á Hvammstanga inn í athugasemdina við 14. gr. Legið hafa frammi á lestrarsalnum skjöl þessu viðvíkjandi, en ekki veit jeg, hvort háttv. þingmenn hafa kynt sjer þau. Jeg vona því, að mjer verði virt til vorkunnar, þótt jeg rifji þau upp fyrir mönnum. Skólinn hefir ekki enn starfað nema 4 ár. Hann er stofnaður af áhugamanni, sem er einkarsýnt um skólastjórn. Maður þessi byrjaði skólann af eigin hvötum og fekk 500 kr. styrk úr sýslusjóði. Landssjóðsstyrk fjekk hann nokkum að auki. En hann hefir fundið, að honum er um megn að halda skólanum áfram, nema styrkurinn verði meiri. Árlegur styrkur þyrfti að vera að minsta kosti 2000 kr. Þessi leið til að hækka styrkinn virðist líka sjálfsögð, að skólinn njóti sömu rjettinda og skólinn að Núpi í Dýrafirði og Hvítárbakkaskólinn. Meðal skjalanna, sem þessu máli fylgja, er ítarlegt yfirlit yfir kostnað við skólahaldið og styrki, sem skólinn hefir fengið. Þá eru meðmæli með skólanum frá 6 merkum mönnum. Allir þessir menn þekkja vel til skólans. Fræðslumálastjóri mælir eindregið með, að styrkur til skólans sje aukinn. Eitt fylgiskjalið er frá prófdómurum skólans, síra Jóhanni Briem á Melstað og Valdemar Baldvinssyni. Presturinn ætti að bera skyn á þessi mál, og hinn maðurinn hefir mentast bæði hjer á landi og erlendis. Þeir segja svo meðal annars, að hjer sje »rjettur maður á rjettum stað«, og má það teljast hið eindregnasta álit, er uppi verður látið. Þetta er ekkert einstætt hól um skólastjórann. Það er samhljóða öllum öðrum ummælum um skólann. Jeg tek þetta, til að grípa einhversstaðar niður. Vottorðin eru frá sýslumanni Húnvetninga, sýslunefndarmönnum, fyrverandi þingm. o. fl., sem jeg nenni ekki upp að telja. Sömuleiðis er fyrir hendi skólaskýrsla.
Síðasta vetur voru 24 fastir nemendur í skólanum, en aukakenslu nutu 12 manns. Nemendurnir höfðu sameiginlegt mötuneyti, og kostaði fæði fyrir karlmanninn kr. 1,09, en fyrir kvenmann 80 a. á dag. Þetta er dálítið meira en hjer sunnanlands, t. d. í Hvanneyrarskólanum. En ýmislegar nauðsynjavörur eru þar fyrir norðan dýrari en hjer, t. d. útlend matvara. Þetta má því teljast mjög góð afkoma. Yfirleitt var öll kensla í ágætu lagi, og má það eingöngu þakka forstöðumanninum. Hann er bæði ábyggilegur og áhugasamur, góður kennari og vandaður maður.
Háttv. þingm. Dala. (B. J.) hefir borið fram brtt. við mína brtt. Ætlast hann til, að Hjarðarholtsskólanum verði líka bætt í athugasemdina. Jeg tek meðmælum hans með minni till. þakksamlega, en get ekki að svo stöddu um það sagt, hvernig jeg tek hans máli. Ekkert liggur fyrir um þann skóla, sem hann vill koma að. Þar fyrir getur hann haft jafngildar ástæður og jeg. Jeg er honum fyllilega samdóma um, að rjettara sje að styrkja heimavistarskóla til sveita en kaupstaðaskólana. Það er mitt álit, að það sje ekki óhollari mentun, sem heimavistarskólar í sveitum veita, en kaupstaðaskólar.
Jeg vænti, að háttv. deild verði ekki mótfallin þessari till. minni. Hjer er ekki um meira að ræða árlega en 1500 kr., og hækkunin frá þeim styrk, sem skólanum hefir verið veittur, ekki nema á 6. hundrað krónur. Vert er það líka að athuga, hvað liggur við. Það er tvísýna á, að skólinn geti haldið áfram, ef hann fær ekki þennan styrk. Nú eru erfiðir tímar, og óráðið, hvort skólar starfa að vetri. Þessum skóla er þó öðruvísi farið en flestum öðrum. Kennarinn verður að borga leigu eftir dýrt hús, hvort sem skólinn verður eða ekki. Í sumar hefir hann starfað að því að sjá skólanum fyrir eldsneyti. Það væri því mikil ástæða til að halda þessum skóla uppi, jafnvel þótt aðrir skólar yrðu að hætta.
Þá er enn ein brtt. mín eftir, till. á þgskj. 692. Jeg er háttv. nefnd þakklátur fyrir það, hve vel hún hefir tekið í þessa till. mína. Hjer er að eins um endurveiting að ræða, og ekkert útlit fyrir, að fjeð verði notað á fjárhagstímabilinu. Veitingin er miðuð við áætlun, sem gerð var fyrir stríðið. Nú mundi bryggjan kosta þrisvar sinnum eins mikið. En kjósendur mínir vildu heldur, að fjárveitingin stæði í fjárlögunum. En það er óhugsandi, að byrjað verði á verkinu meðan útlit er fyrir, að kostnaðurinn fari mikið fram úr áætluninni, sem gerð var 1914.
Hvað aðrar till. snertir mun jeg sýna með atkvæði mínu, hvernig jeg lít á þær. — Þó vil jeg minnast á styrkinn til skálda og listamanna. Við 2. umr. kom fram einkennileg skoðun hjá háttv. 2. þm. N.-M. (Þorst. J.); hann hjelt því fram, að hækka ætti þá menn, sem þegar hafa verið teknir upp, en veita svo afganginn, sárlítinn, til yngri skálda og listamanna. Þetta get jeg ekki felt mig við. Það bæri vott um kyrstöðu. Eftir því ætti að dæma menningarstig þjóðarinnar eftir hinum eldri mönnum, en ekki að taka yngri menn til greina. Nýju mönnunum ætti ekki síður að veita styrkinn. Það má ekki kyrkja þá í uppvextinum. Þeir menn, sem áður hafa hlotið þennan styrk, eru auðvitað alls góðs maklegir. En það á líka að taka fult tillit til hinna yngri manna. Þessari skoðun háttv. 2. þm. N.-M. (Þorst. J.) var ekki mótmælt af háttv. framsm. fjárveitinganefndar (B. J.), og það var einungis þess vegna, sem jeg greiddi atkvæði á móti tillögu nefndarinnar. Framsm. nefndarinnar (B. J.) nefndi þingeysk alþýðuskáld, sem væru rjett borin til styrksins. Ekki man jeg til, að hann nefndi Jakob Thorarensen, og stendur hann þó mjög framarlega meðal þeirra nýju manna, sem styrksins ættu að njóta, og hefir sýnilega meira skáldasnið á sjer en fjöldinn hinna yngri skálda. Sá, sem á skilið að fá viðurkenningu, hann á skilið að fá styrkinn, og eiga listamennirnir að fá að njóta hans strax og þeir koma í ljós og eru viðurkendir.