30.08.1917
Neðri deild: 47. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 339 í B-deild Alþingistíðinda. (75)

1. mál, fjárlög 1918 og 1919

Hákon Kristófersson:

Jeg á brtt. á þgskj. 694. Við 2. umr. talaði jeg fyrir henni, og benti á þörf þessarar fátæku ekkju, frú Lorange. Jeg álít óþarft að fara að endurtaka það nú.

Þá á jeg brtt. á þgskj. 695, um fjárveitingu til bryggjugerðar í Flatey. Vísa jeg til orða háttv. framsm. fjárveitinganefndar (B. J.) um þessa brtt., og treysti því, að deildin samþykki hana.

Enn á jeg brtt. á þgskj. 696. Brtt. er við 15. gr., en ekki 16. gr., eins og misritast hefir á þgskj. Þar er farið fram á, að hækkaður verði styrkur, sem samþyktur var við 2. umr., til einkar efnilegs ungs manns, Helga Hermanns Eiríkssonar. Framsm. fjárveitinganefndar (B. J.) gat þess, að nefndin hefði gengið eins langt og hún hafi sjeð sjer fært. Jeg vil endurtaka þakklæti mitt til nefndarinnar, en jeg er ekki á sama máli og framsm. (B. J.) um það, að ekki væri hægt að ganga lengra. Jeg hefi ástæðu til að halda, að nefndin hafi svo gjarnan viljað ganga lengra, en álitið vonlaust, að deildin mundi samþykkja hærri styrk en 1200 kr. hvort árið. Mjer er persónulega kunnugt um efnahag þessa unga manns, og er jeg í vafa um það, hvort hann muni geta haldið áfram námi, ef hann fær ekki hærri styrk en 1200 kr. Hann er af fátæku fólki kominn, eins og jeg hefi áður skýrt frá.

Skjöl þau, er við koma umsókn hans, hafa legið hjá háttv. fjárveitinganefnd; og skýt jeg því til hennar, að varla mun nokkur umsókn vera studd með betri meðmælum, eða meiri líkindi til, að fjestyrkur komi annarsstaðar að betra haldi en sá, sem veittur kann að verða manni þessum. Hins vegar eru horfur hans um framhaldsnám mjög ískyggilegar, ef hann verður ekki ríflegs styrks aðnjótandi, og skal jeg því til sönnunar, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp fáein orð úr brjefi hans til kunningja síns hjer. »Jeg bíð með óþreyju«, segir hann, »eftir aðgerðum þings, því að þær gera út um forlög mín í náinni framtíð«. Jeg býst við, að háttv. þm. muni mjer samdóma um, að þótt 1200 kr. sjeu að vísu sómasamlegur styrkur, þá muni landið það ekki miklu, þótt hann sje hækkaður upp í 1500 kr., en það getur þó ráðið úrslitum um framtíðarkjör þessa unga og efnilega manns. Jeg fel svo háttv. deild málið til bestu fyrirgreiðslu, og treysti því, að háttv. deildarmenn sýni nú með atkvæði sínu, hvort þeir vilja styrkja unga og efnilega listamenn, eða verða þess valdandi, að þeir verði að engu, sökum skammsýni fulltrúa þjóðarinnar.

Þá kem jeg að brtt. á þgskj. 697, um styrkinn til Patrekshrepps til rafveitu. Háttv. framsm. (B. J.) fór hlýjum orðum um hana, og er jeg háttv. nefnd þakklátur fyrir undirtektir hennar. Því miður munu háttv. þm. ekki hafa átt kost á að kynna sjer drög þau, sem liggja til grundvallar fyrir beiðni þessari; því að jeg trúi ekki öðru en að það mundi hafa áhrif á afstöðu þeirra, sem kynnu að vera málinu mótfallnir.

Jeg er máli þessu persónulega kunnugur, og veit, að ef þingið synjar um lánbeiðni þessa, þá er bæði hreppsfjelaginu og öllu sýslufjelaginu stefnt í beran voða og óþægilegar ógöngur. Þegar byrjað var á rafveitunni, lá fyrir áætlun frá verkfræðingi, sem gerði ráð fyrir, að kostnaðurinn mundi ekki fara fram úr 40000 kr., og á þessu var bygt, þegar ráðist var í fyrirtækið. Nú er búið að kaupa efnið, byggja stöðvarhús og grafa skurð fyrir vatnsleiðsluna o. fl. o. fl. En þess má geta, að pípur þær, sem leiða átti vatnið eftir, sitja í Englandi, og hefir það hamlað fljótum framgangi á fyrirtækinu, þótt gert væri ráð fyrir, að það yrði fullbúið síðasta haust. Það er nú auðsjeð, að þegar fyrirtækinu er lokið, þá muni kostnaðurinn vera orðinn yfir 80000 kr. Ýms óhöpp hafa komið fyrir, sem hleypt hafa kostnaðinum fram. Flutningskostnaðurinn einn á pípunum mun verða um 11000 kr. hærri nú en áætlað var og samið hafði verið um.

Hjer á þingið kost á að sýna, hvort það vill styrkja þjóðþrifafyrirtæki með því að hlaupa undir bagga, eða verða þess valdandi, að hreppsfjelag og sýslufjelag komist í hin alvarlegustu vandræði.

Jeg treysti því, að háttv. deild muni fara eftir tillögum háttv. fjárveitinganefndar, sem hefir kynt sjer málið og er öll á því, að lánið sje veitt. Fjölyrði jeg svo ekki meira um þetta, en óska, að von mín um góðar undirtektir háttv. deildar rætist, en láti sjer ekki til skammar verða.

Jeg vil svo með örfáum orðum minnast á einstöku tillögur háttv. fjárveitinganefndar á þgskj. 722, sjerstaklega tillöguna um 30000 kr. fjárveitinguna til loftskeytastöðvar í Flatey. Er jeg háttv. nefnd mjög þakklátur fyrir undirtektir hennar undir það mál. Að vísu hnýtir hún aftan við tillöguna um það, að hjeraðið taki þátt í kostnaðinum, eftir því sem stjórnin ákveður. Þetta má kallast nokkuð laust og óákveðið, en af því að jeg ber gott traust til stjórnarinnar, að hún sýni þar fulla sanngirni, geri jeg mig nokkum veginn ánægðan með athugasemdina og úrslit málsins, eftir atvikum. Hjer er ekki einungis að ræða um lyftistöng til framfara fyrir hjeraðið, heldur og allálitlega tekjulind fyrir landssjóð. Það væri hrapallegt og nær því broslegt, úr því að komið hefir verið upp dýrri loftskeytastöð í Reykjavík, ef ekki væri komið upp loftskeytastöðvum í sambandi við hana, þar sem erfitt er um símalagning, en hún látin standa einangruð, gagnslítil og arðlítil fyrir landið. Jeg vona, að háttv. deild leyfi tillögu þessari að ganga fram, og get þess í sambandi við þetta, að landssímastjórinn hefir mælt eindregið með því, að loftskeytastöð yrði reist í Flatey næst eftir Reykjavík, enda væri frekari dráttur á því alveg óforsvaranlegur, eftir því sem á stendur.

Jeg er samþykkur háttv. 1. þm. Húnv. (Þór. J.) um listamannastyrkinn, að ekki beri eingöngu að taka tillit til eldri skálda, heldur líka hinna yngri, við úthlutun hans. Að öðru leyti er jeg á því, að best fari, að stjórnin, ásamt meðráðamönnum sínum, hafi óbundnar hendur um það, hvernig styrknum sje úthlutað.

Jeg sleppi því að tala um aðrar tillögur, sem hjer liggja fyrir, en mun með atkvæði mínu sjálfsagt sýna, hvernig jeg lít á þær.