30.08.1917
Neðri deild: 47. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 351 í B-deild Alþingistíðinda. (78)
1. mál, fjárlög 1918 og 1919
Sveinn Ólafsson:
Jeg hefi verið svo óheppinn að bera fram 2 brtt. Jeg segi óheppinn, af því að háttv. fjárveitinganefnd hefir tekið afstöðu á móti þeim báðum, og þar er við raman reip að draga, sem hún er, því að það er vitanlegt, að hún er tvíefld, þar sem hún legst á móti, því að hún getur notað þann rjett sinn, að ? atkvæða þurfi til að koma því máli fram, sem hún er andvíg. Önnur þessi brtt. er á þgskj. 643 og lýtur að byggingu á Hallormsstað, sem er skógarjörð landssjóðs. Háttv. frsm. (B. J.) lagði á móti þessari till., en ekki heyrði jeg hann færa fram aðra ástæðu en þá, að húsin á jörðinni myndu enn geta lafað um hríð. Jeg skal ekki um það segja, hve lengi þau lafa, en það veit jeg, að einn góðan veðurdag falla þau. Hve margir dagar verða þangað til get jeg ekki sagt, en húsin eru fyrir löngu orðin alveg ófær og allsendis ósamboðin slíkum stað sem Hallormsstað. Jeg vil geta þess, að Hallormsstaður er einna mest heimsóttur af öllum sveitabæjum á Austurlandi, bæði af innlendum mönnum og útlendum, og það er því meira en lítil vanvirða, að staðurinn skuli vera svo illa hýstur, að vísa verði fáum, góðum gestum frá eða í hlöður til gistingar. Baðstofan er orðin mjög gömul, sigin í ýmsar áttir, skökk og skæld.
Af úttektum frá Hallormsstað hefi jeg náð í eina frá 1905. Þá var baðstofan í því ástandi, að á hana voru lagðar 200 kr., og vitanlega hefir henni hnignað í þessi 12 ár, sem síðan eru liðin. Skógarvörðurinn hefir verið svo nægjusamur, að hann hefir ekki farið fram á þessa fjárveitingu fyr. Hvort byggingin getur komist fljótt upp, ef fjárveitingin fæst, er undir ýmsum atvikum komið, meðal annars því, hvort sement fæst, en tilgangurinn er að koma henni upp svo fljótt sem auðið er. Af því að háttv. framsm. (B. J.) tók svo ólundarlega í þetta og viðhafði ekki önnur rök en þau, að húsin gætu víst lafað eitt ár enn, dettur mjer í hug að spyrja hann, hvort vjer munum ekki geta komist af eitt ár enn án þess að fá Goethes Faust þýddan. Jeg ætla ekki að leiða neinar getur að, hvernig aðrir háttv. þingdm. muni líta á þetta mál, en jeg ætla að vona, að háttv. fjárveitinganefnd beiti ekki við þessa brtt. mína því ákvæði þingskapanna, sem jeg hefi áður nefnt, því að þá gæti verið, að þetta slysaðist í gegn, og það verð jeg að segja, að margir liðir hjer í fjárlögunum eiga ekki meiri rjett á sjer en þessi, og skal jeg þó ekki storka hlutaðeigendum með því að telja þá upp.
Aðra brtt. á jeg hjer, á þgskj. 645, en hún lýtur ekki að fjáreyðslu, heldur lánsheimild, og fer fram á að fá til rafmagnsveitu á Fáskrúðsfirði 60,000 kr. lán. Á móti þessu hefir háttv. fjárveitinganefnd haft það, að verkið væri ekki nægilega undirbúið, og því ofsnemt að veita til þess lán. Jeg hefi nú hjer við höndina skjöl, sem sanna það, að mikið er búið að gera þarna til undirbúnings, og verkið væri sjálfsagt komið töluvert áleiðis, ef stríðið hefði ekki tafið fyrir frekari framkvæmdum. Skjöl þessi hafa legið hjer á lestrarsal margar vikur og opin háttv. fjárveitinganefnd. Þessu verki verður hiklaust haldið áfram, þegar stríðsófögnuðinum linnir. Þeir, sem þarna eiga hlut að máli, geta ekki beðið, því að þegar er búið að starfa töluvert að verkinu. Jeg get búist við, að um slíka lánsheimild sem þessa fari eins og um aðrar líkar upphæðir, að fjeð verði ekki handbært, þegar til á að taka, en veitist þá þegar um hægist.
Mjer finst það ekki alls kostar vingjarnlegt af háttv. fjárveitinganefnd að setja sig á móti þessari lánsheimild, þegar sukkað er nær á öllum sviðum. Þetta eru aðaltillögurnar, sem jeg hefi borið fram. Að vísu stendur nafn mitt á fleiri brtt. með hv. samþingismanni mínum (B. St.), en hann mun gera grein fyrir þeim. Um tillögur annara þingmanna hefi jeg fátt eitt að segja. Þó eru tvær brtt., sem mig langar til að athuga dálítið nánar. Þær eru á þgskj. 689. og 729 og lúta báðar að því að tryggja tveimur skólum allmikla fjárupphæð af því fje, sem ætlað er til unglingaskóla úti um land. Eins og fjárlögin bera með sjer eru ætlaðar til þess 14,500 kr. Af þessari upphæð hafa 4 skólar fengið sjer trygðar sínar 1500 kr. hver, og flutnm. að þessum brtt. fara fram á að tryggja tveimur skólum í viðbót þessa sömu upphæð. Með því móti væri höggið svo mikið skarð í upphæðina, sem ætluð er til unglingafræðslu hvarvetna á landinu, að lítið verður eftir handa öðrum skólum. Ef þessar brtt. verða samþyktar, þá er að minsta kosti búið að eyða 9000 kr. af þessum 14,500, og sjá þá allir, að það, sem eftir er, er ekki mikið til úthlutunar í marga staði. Jeg er ekki á móti því, að þessir skólar sjeu styrktir, en jeg vil ekki, að þeir gíni yfir öllum þeim styrk, sem ætlaður er til allrar unglingafræðslu. Jeg legg því eindregið móti þessum breytingartill. og einkarjettarstefnu, þeirra.
Aðrar tillögur get jeg leitt hjá mjer að tala um. Það kemur fram við atkvgr., hvernig jeg lít á þær. Jeg býst líka við, að forlög flestra þeirra sjeu fyrirfram ákveðin, svo að ekkert þýði um þær að ræða. En jeg get ekki stilt mig um að minnast á það, að mjer þótti hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) fara óþarflega óvirðulegum orðum um brtt. á þgskj. 680. Mjer hefði fundist, að hann hefði vel getað verið dálítið kurteisari í garð flutnm. að þeim brtt. Það er að vísu svo, að jeg á ekki neinn þátt í þeim. En jeg er þó í dálitlum vafa um, hvort sumar fjárveitingarnar, sem þar er farið fram á að fella í burt, eru svo sjálfsagðar, að nein goðgá geti talist, þótt við þeim sje hróflað. Jeg get t. d. ekki litið svo á, að styrkurinn til að þýða Faust sje frambærilegur á þessu bjargráðaþingi. Á aukaþinginu í vetur var það tekið skýrt fram, að þennan styrk skyldi greiða af fjenu til skálda og listamanna. Það var alls ekki til þess ætlast, að standandi fjárveiting yrði tekin upp í fjárlög. Líka var þá litið á styrkinn sem nokkurs konar dýrtíðarráðstöfun til einstaks manns. Jeg verð að segja það, að þótt þessi þýðing sje gott verk og mikið fyrir hana gefandi, þá er Faust ekki það guðspjall, sem gefa beri stórfje fyrir, og fráleitt kemst þýðandinn í tölu guðspjallamannanna. Þetta skáldverk er ekki heldur svo einstætt í bókmentum heimsins, að útleggingu þess beri að gera að opinberri ráðstöfun. Ekki fjekk Sveinbjörn Egilsson styrk af almannafje til að þýða Hómerskvæðin, eða Jón Þorláksson til að þýða Paradísarmissi. Þau verk eru að skáldlegri list nokkuð hliðstæð Faust, og á þeim tíma, sem þau voru þýdd, og að minsta kosti við þau kjör, sem Jón Þorláksson lifði, var verkið ekki minna vert en nú er að þýða Faust. En þessir menn unnu sjer til frægðar, en ekki fjár, unnu eftir köllun sinni og óeigingjarnt. Það er gert svo mikið veður út af þessari þýðingu, að undrum sætir, og því líta margir á þetta úti um land eins og hjegómamál. Þegar á það er litið, að margir af þeim, sem á annað borð mundu lesa bókina, geta lesið hana á útlendu tungumáli, þá verður að kannast við það, að hjer er um enga nauðsyn að ræða.