30.08.1917
Neðri deild: 47. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í B-deild Alþingistíðinda. (79)

1. mál, fjárlög 1918 og 1919

Stefán Stefánsson:

Jeg á hjer, ásamt háttv. samþingismanni mínum (E. Árna), brtt. á þgskj. 698. Tillagan er um launaviðbót og húsaleigustyrk til póstafgreiðslumannsins á Siglufirði. Jeg hafði hugsað mjer að bæta þessari upphæð við á liðinn til póstafgreiðslumanna utan Reykjavíkur. En jeg mintist þess, að allar tillögur um hækkun á þeim liðum voru feldar við 2. umr. Þess vegna tók jeg það ráð að flytja tillöguna fram á þennan hátt, en nú hefir háttv. fjárveitinganefnd þóknast að leggja á móti tillögunni. Jeg vona samt, að þótt jeg taki nú tillöguna aftur, þá sýni nefndin henni þá velvild síðar, er jeg vísa henni inn á þann stað í fjárlagafrumv., sem mjer skilst að hún ætlist helst til, að hún verði ekki fjárveitingunni andvíg. Tillagan er því tekin aftur.

En svo eigum við aðra brtt. á þgskj. 690, og er hún fram komin af þeirri ástæðu, að meiri hluti samgöngumálanefnda beggja deilda hefir verið svo örlátur að bera fram brtt. um að veita fje til brúar á Hofsá í Vopnafirði. Hjer er því farið fram á að fá fje til brúar á Svarfaðardalsá. Það mun vera líkt á komið með báðar þessar brýr að því leyti, að báðar eru á sýsluvegi, og þar við má bæta því um brúna á Svarfaðardalsá, að búið er að skoða brúarstæðið fyrir 7 eða 8 árum og gera áætlun um brúargerðina og allan kostnað. Umferð er mjög mikil yfir ána, bæði af innsveitismönnum og öðrum ferðamönnum, og einnig með fjárrekstra, eins og hv. 2. þm. N.-M. (Þorst. J.) tók fram — eflaust með rjettu — um Hofsá. Nú hafa Svarfdælir lagt fram margar þúsundir kr. til brúargerða í dalnum, og ætti það að vera meðmæli með því, að þeir fengju, ekki síður en aðrar sveitir, fjárveitingu til nauðsynlegrar brúar, sem er á sýsluvegaleið. Annars hefði jeg ekki komið fram með þessa brtt., ef tillagan um framlag til brúar á Hofsá hefði ekki komið fram frá samgöngumálanefndinni, og verði sú tillaga feld, dettur mjer ekki í hug að halda minni tillögu fram. Jeg vil geta um þetta, til þess að menn sjái, hvers vegna jeg ber brtt. fram. En þess vil jeg geta, að máli þessu var hreyft á þingmálafundi nú í vor í Svarfaðardal, og lagt mjög ríkt á að fá fjárveitingu til þessarar brúar, ef þess yrði nokkur kostur. Jeg taldi því sjálfsagt að koma með brtt., þegar önnur samskonar var komin fram, sem að mínu áliti hefir alls ekki meiri rjett á sjer. — Jeg hirði ekki að minnast á aðrar brtt. Jeg mun sýna það við atkvgr., hvernig afstaða mín er til þeirra. Að eins skal jeg minnast á skólann á Hvammstanga. Jeg tel ekki síður sjálfsagt að styrkja hann en aðra samskonar skóla, sem trygður er styrkur í fjárlögunum. Jeg þekki allvel þennan skóla, af náinni afspurn, og get að öllu leyti undirskrifað þau meðmæli, sem hann hefir hlotið frá 1. þm. Húnv. (Þór. J.).,