04.08.1917
Neðri deild: 25. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1167 í B-deild Alþingistíðinda. (817)

21. mál, framkvæmd eignarnáms

Gísli Sveinsson:

Að eins lítil spurning til háttv. frsm. (M. G.), um það, hvort nefndin hafi athugað, hvort það geti ekki komið fyrir, að sýslufjelag, þar sem dómari er oddviti sýslunefndar, bæði um eignarnám. Í 6. gr. frv. er gert ráð fyrir, að þar sem dómari er oddviti bæjarstjórnar í einhverju bæjarfjelagi, eða eigi sæti í bæjarstjórn, skuli stjórnarráðið kveðja yfirmatsmennina. Nú væri hugsanlegt, að eins stæði á fyrir sýslufjelagi. Hjer fyrir þinginu liggur einmitt frv., sem gerir ráð fyrir, að sýslufjelag þurfi að taka eignarnámi. Það er frv. um fyrirhleðslu fyrir Þverá og Markarfljót. Og þyrfti þá tilsvarandi ákvæði í frv. hjer að lútandi.