07.07.1917
Neðri deild: 5. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1169 í B-deild Alþingistíðinda. (826)
28. mál, áveita á Flóann
Flm. (Sigurður Sigurðsson):
Alþingi 1915 samþykti tillögu, þar sem skorað var á stjórnina að skipa þriggja manna nefnd til þess að rannsaka Flóaáveitumálið og undirbúa það fyrir næsta þing. Stjórnin skipaði þessa nefnd, og lauk hún störfum sínum í síðastliðnum desembermánuði. Áliti þeirrar nefndar hefir verið útbýtt meðal allra þingmanna. Frv. það, sem hjer liggur nú fyrir, á þgskj. 28, er nákvæmlega sama frv. sem nefndin bjó til og prentað er í áliti hennar.
Jeg hafði nú, satt að segja, vænst þess, að hæstv. stjórn hefði fundið köllun hjá sjer til þess að taka málið að sjer og leggja frv. fyrir þingið. En þar sem því var ekki að heilsa, þá höfum við þingmenn kjördæmisins tekið frv. að okkur, enda var skorað á okkur á
fundi við Ölfusárbrú þann 27. júní að flytja frv., »ef stjórnin gerði ekki skyldu sína í því efni«, eins og fundurinn komst að orði.
Það eru mörg ár síðan þessu máli var fyrst hreyft. Það eru víst nálega 40 ár síðan fyrst heyrðust raddir um það að veita Þjórsá eða Hvítá yfir Flóa og Skeiðin. Málinu hefir síðan verið haldið vakandi með ýmsum ráðstöfunum, mælingum o. fl. En fyrsta mælingin, sem nokkuð kveður að, fór fram árið 1906. Hana framkvæmdi danskur verkfræðingur frá Heiðafjelaginu danska, Carl Thalbitzer að nafni. Hann gerði og glögga áætlun um kostnaðinn. Þessi skýrsla er prentuð. Síðan fór enn fram mæling 1910, og loks lokamæling 1914 og 1915, gerð af íslenskum verkfræðingi í þjónustu landsins.
Það má því með fullum rjetti segja, að nú sje undirbúningsstarfinu lokið, og kemur nú til kasta þings og stjórnar að halda málinu áfram, eftir því sem frv. fram á.
Þannig er þá þetta stórmál komið inn á þingið. Það er í alla staði tímabært, og er það von okkar flutningsmannanna, að því verði vel tekið og að það fái farsællegan framgang.
Um rannsóknina þarf jeg ekki að fjölyrða; jeg get látið mjer nægja að vísa til nefndarálitsins. Að eins vil jeg geta þess, sem þar er raunar upplýst, að kostnaðurinn nemur rúmum 500 þús. kr., og auk þess er flóðgarðahleðsla, sem er allmikið verk. Nemur sá kostnaður um 100 þús. kr. í heild sinni nemur þá kostnaðurinn alls ekki minnu en 600 þús. kr. Áveitusvæðið sjálft er 15145 hektarar eða 151½ ? km. Það verður, þegar kostnaðinum er jafnað niður, 33 kr. á hvern hektara, eða 10 til 11 kr. á hverja vallardagssláttu.
Af þessu má sjá, að hjer er um afarstórt fyrirtæki að ræða, stærra jarðræktarfyrirtæki en nokkurn tíma hefir verið ráðist í hjer á landi.
Jeg get búist við athugasemdum í þá átt, hvort nokkur þörf muni vera á þessu fyrirtæki. Þeir, sem ókunnugir eru á þessum slóðum, munu hafa heyrt það, að Flóinn sje blautlent svæði og ilt yfirferðar. Þeir munu hafa heyrt það, að vatn geri þar fremur tjón heldur en að skortur sje á vatni. En þessu er ekki svo háttað, þótt undarlegt megi virðast. Að vísu getur það komið fyrir í sjerstökum óþurkaárum, að bagi verði að vatninu, en yfirleitt hefir einmitt vatnsleysi eða áveituleysi staðið þessu hjeraði fyrir þrifum. En þegar verkið er komið í kring, er ekki hætt við því, að vatnið geri skaða, því að samhliða áveitunni er gert ráð fyrir því, að mýrarnar verði ræstar fram, svo að enginn skaði geti orðið að vatninu um heyannirnar. En það er einmitt þessi áveituvatnsskortur, sem verið hefir þröskuldur í vegi fyrir stórum búskap á þessu svæði.
Annars býst jeg við, að enginn láti sjer detta í hug, að menn geri það að gamni sínu að ráðast í verk, sem kostar nálægt ¾ miljónar kr., þar sem hlutaðeigendur verða sjálfir að bera mestan hluta kostnaðarins. Það segir sig sjálft, að í það mundu menn ekki ráðast nema af knýjandi þörf.
Þetta frv. er í raun og veru ekki annað en heimildarlagafrv., til þess að hægt sje að ráðast í fyrirtækið sjálft þegar alt er undirbúið, sem frv. gerir ráð fyrir, stofnað áveitufjelag o. fl. Allur undirbúningur undir fyrirtækið verður að fara fram áður en ráðist er í að framkvæma verkið. Þegar áveitufjelagið er stofnað og samþykt gerð um kostnaðinn o. fl. og honum jafnað niður, þá fyrst kemur til kasta landsstjórnarinnar að láta skríða til skarar og hefja verkið, samhliða því að útvega fje til fyrirtækisins. Það er því aðkallandi nauðsyn að fá lögin samþ. nú. Það er mín vissa, von og trú, að háttv. deild og heiðrað Alþingi líti á þá aðkallandi nauðsyn, sem hjer liggur fyrir og taki því þessu frv. vel, svo að því verði gatan greið, og að það megi ná sigri, og framkvæmdirnar fylgja á eftir. Að öðru leyti er, að svo stöddu, ekki ástæða til að fara fleirum orðum um það. Jeg vænti þess, að því verði vel tekið og látið ganga til 2. umr. Lægi þá beinast við, að það gengi til landbúnaðarnefndar, enda geri jeg það að till. minni.