30.08.1917
Neðri deild: 47. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 372 í B-deild Alþingistíðinda. (83)
1. mál, fjárlög 1918 og 1919
Þorleifur Jónsson:
Jeg er svo heppinn að eiga sjálfur enga brtt. við frv. að þessu sinni, en þó get jeg ekki stilt mig um að minnast á brtt. á þgskj. 679, sem fer fram á, að Gísla presti Kjartanssyni sjeu veittar 800 kr. í eftirlaun á ári. Tel jeg mjer skylt sem kunnugum manni að fara nokkrum orðum um þetta mál.
Hjer hafa legið frammi skjöl frá 115 Öræfingum um að veita síra Gísla Kjartanssyni 1000 kr. árleg eftirlaun, og eru þar færðar ástæður fyrir þessu. Háttv. fjárveitinganefnd tók umsókn þessa til greina, en fyrir óhöpp og ókunnugleika var till. fjárveitinganefndar feld við 2. umr., og var það mjög leiðinlegt, því að hjer var að ræða um nauðsynlega og maklega fjárveitingu. Prestur þessi hefir orðið að láta af embætti sökum heilsubrests, og getur hvorki haft ofan af fyrir sjer nje hefir efni við að styðjast, svo að fjárþörfin er mikil.
Nú hafa verið samþykt hjer í deild eftirlaun handa síra Lárusi Halldórssyni og síra Jónasi Jónassyni, og þar sem síra Lárusi eru ætlaðar 1500 kr. á ári, þá vona jeg, að þessi fjárveiting, sem er nálega helmingi lægri, verði ogg samþykt.
Eins og jeg gat áðan um er efnahagur síra Gísla hinn erfiðasti; hann á 4 börn innan fermingaraldurs og er sjálfur ófær vegna heilsubrests að bjarga sjer, og er þar líkt á komið með þeim síra Lárusi, að báðir eru fátækir og ófærir til vinnu.
Jeg hefi talað við biskup um málið, og hefi orð hans fyrir því, að hann vill gjarnan, að styrkur þessi sje veittur. Tillagan fer fram á, að öll eftirlaun síra Gísla verði 800 kr. Lögmælt eftirlaun hans munu vera rúml. 300 kr., svo að hækkunin verður ekki nema um 500 kr.
Háttv. 2. þm. S.-M. (B. St.) vildi heldur, að fjárveiting þessi stæðí í 14. gr. A. a. 3. en í 18. gr. Jeg færði einmitt þetta í tal við biskup, og hann kaus heldur, að fjárveitingin til beggja þessara presta, sem honum þótti maklegt að styrktir væru stæði í 18. gr. en í 14. gr.
Það er kunnugt, að síra Gísli var mesti gáfu- og atgervismaður, en nú eru kraftar hans þrotnir, og vona jeg, að háttv. deild leiðrjetti nú mistök þau, sem urðu við atkvæðagreiðsluna síðast, sjálfsagt fyrir ókunnugleika sumra háttv. þingdm.
Jeg þekki svo lundarfar síra Gísla, að honum mundi þykja sárt að vera að öllu leyti upp á aðra kominn. Hann dvelur nú sem stendur á Fagurhólsmýri, en fjölskylda hans er hjer á Suðurlandi
Jeg vona, að þessar upplýsingar mínar verði teknar til greina við atkvæðagreiðsluna í kvöld, og það því fremur, sem hjer er farið fram á svo hóflega fjárveitingu, til að ljetta undir með þessum mæta manni.