30.07.1917
Neðri deild: 20. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1182 í B-deild Alþingistíðinda. (849)

32. mál, vátrygging sveitabæja

Sveinn Ólatsson:

Mál þetta þarf ekki að ræða að þessu sinni. Það hefir mætt svo góðum undirtektum hjer í deildinni, að líklegt er, að enginn hafi neinar athugasemdir framar fram að bera. Enda hefir nú málið fengið rækilegan undirbúning, þar sem það hefir gengið tvisvar í gegnum landbúnaðarnefndina, bæði næstliðinn vetur á aukaþinginu og nú. Jeg vona því, að frv. verði afgreitt frá deildinni, eins og það liggur fyrir.