12.07.1917
Neðri deild: 8. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1186 í B-deild Alþingistíðinda. (860)
35. mál, stefnufrestur
Forsætisráðherra (J. M.):
Það er ekki af því, að jeg sje ekki samdóma háttv. flm. (E. A.) um nauðsyn til að endurskoða rjettarfarslöggjöf vora, að jeg stend upp. Jeg vildi að eins skjóta þeirri aths. að háttv. flm. (E. A.), hvort honum hefði ekki dottið í hug, að með frv. þyrfti að fylgja ákvæði um breytingu á stefnubirtingu. Mjer virðist ástæða til þess, þegar fresturinn er styttur. Jeg hefi vitað það þráfaldlega koma fyrir, að mönnum hefir verið stefnt að mæta fyrir dómi og stefnubirtingin hefir verið gild, en það hefir verið alveg ómögulegt fyrir hinn stefnda að vita af stefnunni fyrir mótdaginn. Jeg vil líka taka það fram, að dómstólarnir hjer á landi hafa oft verið í mjög miklum vafa, hvort bæri að skoða stefnuna gilda, og hafa í því fylgt ýmsum reglum, stundum ónýtt stefnubirtinguna og stundum talið hana gilda. Jeg skal leyfa mjer að benda á, að það er mjög varasamt að stytta mikið stefnufrestinn, og þess vegna er ástæða til að athuga frv. vel í nefnd, enda þótt það sje mjög vel úr garði gert, og er þá sjálfsagt að láta það ganga til allsherjarnefndar.