20.07.1917
Neðri deild: 15. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1190 í B-deild Alþingistíðinda. (866)

35. mál, stefnufrestur

Frsm. (Einar Arnórsson):

Jeg get þakkað hæstv. forsætisráðherra fyrir, að hann vakti athygli á þessu atriði, sem kynni að vera vafasamt að annars yrðu skilin rjett af öllum. Bæði flutningsmenn og nefndin álitu ekki hættulegt að leggja í hendur dómaranna vald til að ákveða frest í vissum tilfellum. Dómarinn getur þá ákveðið frestinn eftir ýmsum atvikum í sjerstökum tilfellum.

Skilningur hæstv. forsætisráðherra á gildi 1. gr. laga nr. 59, 10. nóv. 1905, er vitanlega alveg rjettur. Jeg held, að það geti varla valdið misskilningi, sjerstaklega í sambandi við önnur lög um stefnubirtingu, sem jeg býst við að gangi í gildi á þessu þingi. Þar að auki stendur í 18. gr. frv.: ». . . að því leyti sem nefnd lagaákvæði hafa að geyma fyrirmæli um stefnufrest«. Á því held jeg, að allir hljóti að sjá, að 1. gr. laga nr. 59, 10. nóv. 1905, stendur óbreytt. Jeg sje því ekki ástæðu til annars en að frv. ætti að fá gildi óbreytt.