14.08.1917
Efri deild: 30. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1192 í B-deild Alþingistíðinda. (874)
35. mál, stefnufrestur
Frsm. (Magnús Torfason):
Eins og menn hafa sjeð á nefndarálitinu er það að eins ein efnisbreyting, sem nefndin hefir gert á þessu frv. Í 7. gr. frv. er svo ákveðið, að gestarjettarstefnufrestur skuli ekki vera skemri en einn sólarhringur. Samkvæmt gömlum og gildum lögum hefir hann að eins verið kvöldstefnufrestur. En með því að bæta við sólarhring verður hann auk þess sólarhringsfrestur. Nefndinni fanst eigi ástæða til að hafa frestinn lengri og þótti óþarft að breyta lögunum í þessu efni. Því að það getur vitanlega verið óhallkvæmt fyrir menn, sem eru gestir, að bíða 4 sólarhringa eftir því, að málið verði tekið fyrir, enda enginn kvartað yfir kvöldstefnufrestinum.
Þá er brtt. við 9. gr., sem er að eins gerð til þess, að frv. verði skýrara.
Hitt er alt orðabreytingar. Jeg skal sjerstaklega geta þess um málalengingarnar í 1. og 2. gr. í frv., að þær stafa af því, að erfitt var að koma Reykjavík og Hafnarfirði undir almennu ákvæðin. En brtt. fer fram á, að Reykjavík og Hafnarfjörður skuli talin innan sama sýslufjelags, eins og þau voru áður. Kaupstaðirnir eru auðvitað ekkert annað en smáblettir úr sýslunni, og sýslurnar eiga landhelgi umhverfis þá.
Þá er breyting við 3. og 4. gr., að fyrir »hverju sinni« komi í hvert sinn. Hverju sinni er rjett mál, en nefndin hafði aldrei heyrt það, og fanst hitt látlausara.