30.08.1917
Neðri deild: 47. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 390 í B-deild Alþingistíðinda. (88)

1. mál, fjárlög 1918 og 1919

Einar Jónason:

Ekki er að tjá sig um það, þótt maður hafi orðið þess valdur, að umræðurnar hafa orðið lengri og fjörugri en ella. En fjörugastar hafa þær orðið vegna till. okkar 2. þingm. S.-M. (B. St.) á þgskj. 680, og brtt. samgöngumálanefndar um brú á Hofsá. Um þessi tvö atriði hafa umræðurnar aðallega snúist.

Það er sjerstaklega vegna brtt. á þgskj. 680, að jeg stend hjer nú. upp. Út af henni hafa ýmsum hrotið hörð orð í garð flutningsmanna.

Háttv. þingm. V.Sk, (G. Sv.) vítti okkur flutnm. fyrir að vilja spara. Jeg býst við, að orðin hafi komið út úr honum öðruvísi en hann hefir ætlast til því að enginn er hann eyðslumaður.

Annars hefi jeg ekki orðið hjartveikur út af þessum orðum hans. Jeg hygg, að allir þessir liðir, sem við viljum fella burt, geti beðið hentugri og betri tíma. Mjer kemur það einkennilega fyrir sjónir, að Gísli Sveinsson, sem er Vestur-Skaftfellingur, skuli tala til svona. Mjer virðist svo, sem flestir bitlingar lendi hjer í Reykjavík, og eru það helst Reykvíkingar, sem berja þá fram. Þess vegna á það illa við, að þingmenn austan úr Skattafellssýslu svari mjer um óþarfa sparsemi, þótt jeg vilji draga úr óþörfum gjöldum á þessum örðugu stríðs- og neyðartímum.

Háttv. 2. þingm, Árn. (E. A ) tók í sama streng og háttv. þm. V. Sk. (G. Sv.). Hann áleit, að heimild væri til þessarar fjárveitingar til Bjarna Jónssonar í fjárlögum, samkvæmt þingsáltill. og dagskrá, sem samþykt var í vetur. En jeg mótmæli því. Lesið till. á þgskj. 61 í Alþt. 1916—17, A-deild.

Jeg álít, að hjer sje þingið farið að skifta sjer af þessum styrk, og sný ekki frá því, að af skálda- og listamannastyrknum á Bjarni Jónsson að fá lítils háttar hjálp til að þýða »Faust«. Hitt er jeg sannfærður um, að þýðingin kemur aldrei að notum. Almenningur mun ekki lesa hana. Því væri alt eins gott að láta þýðandann hvíla sig. Enda veit jeg ekki, til hvers er verið að þýða slík rit; ekki var þessi Faust betri en það, að hann gaf sig hinum vonda á vald, og mun það síst hvetja menn til góðs lífernis.

Í sambandi við þetta skal jeg minnast á það, að háttv. þm. Dala. (B. J.) sagði, að styrkurinn til listamanna mætti ekki vera minni en 20,000 kr. Jeg skal ekki þræta um þetta við hann; en þar sem hann sagði, að hægra væri að skilja eftir af styrknum en að skilja eftir styrkþurfandi menn, þá mun varla að kvíða því, hve hár sem styrkurinn yrði settur, að ekki myndu finnast nógir til að eta hann upp. Víst er það, að þegar háttv. þm. (B. J.) var ráðunautur, hásællar minningar, tókst honum einum að eta upp á einu ári jafnmikið og allur skálda- og listamannastyrkurinn er. (B. J.: Hvað eta bolarnir á Geldingalæk?). Heyrudda, en það gerir þm. Dala. sjer ekki að góðu.

Einn liður er það, sem talsvert hefir verið talað um; það er að kaupa söngfræðisafn Jónasar Jónssonar, háskóladyravarðar. Tveir hv. þingdm. hafa um þetta talað, og hefir mjer fundist ekki sem best samræmi í ræðum þeirra, og þeir ekki einu sinni vera í samræmi við sjálfa sig.

Háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) segir, að gustuk sje að hjálpa ekkju Jónasar, sem sje fátæk, og kaupa safnið, en í öðru orðinu segir hann, að hún geti selt það dýrara öðrum. Þetta get jeg ekki samrýmt, að hún ætli að gefa landinu, og að landið eigi að hjálpa henni fyrir fátæktar sakir. En af því að jeg álít, að þessi fróma heiðursekkja sje alls góðs makleg, þá sýnist mjer ekki rjett, að landið kaupi safnið af henni, nema hún fái eins mikið fyrir það eins og aðrir bjóða, og jeg vil ekki, að landið sje að ásælast þessa heiðursekkju, með því að kaupa þetta dýrmæta safn lægra verði en aðrir bjóða, og skaða hana með því. Hjer er svo mikið ósamræmi í orðum háttv. þm. (M. Ó.), að það er eins og verið sje að blekkja menn, og að hún geti ekki selt safnið annarsstaðar. (B. J.: Ætlar hv. þm. nú að fara að halda þingbíó sitt?). Háttv. þm. (B. J.) ætti að fara fram á það að fá styrk til einstakra manna, til að fara í bíó fyrir og sitja á kafflhúsum. En fyrst að hv. þm. (B. J.) er altaf að uppnefna mig og kalla mig siðameistara deildarinnar og Ciceró, mentafrömuð o. fl, þá ætti hann að hlýða mjer í öllu. Hann kannast víst við þessar hendingar um Cicero:

»Gullritna Cicerós frægð

aldrei dulgleymi fal«.

Athugi háttv. þm. (B. J.) þetta og keppi eftir að ná gullritinni frægð Cicerós hins eldra og líka hins yngra, með dáð og drenglyndi, og vinna svo heiðarlega sín störf, að dulgleymi þurfi eigi að fela.