13.07.1917
Neðri deild: 9. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1202 í B-deild Alþingistíðinda. (885)

37. mál, skipting bæjarfógetaembættisins í Reykjavík

Flm. (Gísli Sveinsson):

Hæstv. forsætisráðherra hefir gert nokkrar athugasemdir við frv. mitt, og er það ekki meira en jeg bjóst við, úr því að hæstv. landsstjórn kom ekki með svipað frv., sem jeg tel henni hafa verið skylt að gera, þótt ekki væri nema vegna þingsályktunartill. frá 1914, sem var ítrekuð á þingi 1915. Jeg tel rangt að skilja þingsályktunartill. bindandi eingöngu fyrir þáverandi stjórn, því að vitanlega er hún bindandi fyrir hvaða stjórn sem er. Jeg bjóst sjerstaklega við líku frv. og þessu frá þeirri stjórn, sem nú situr að völdum, af því, að nú á í henni sæti sem forsætisráðherra sá maður, sem sjálfsagt er best kunnugur þessu embætti og þörfinni á að skifta því. Ef stjórnin hefði lagt málið fyrir þingið, væri ekki óhugsandi, að það væri betur úr garði gert, því að hún hefir betri tök á því en einstakir þingmenn, sem ef til vill eru að bíða í lengstu lög eftir því, að stjórnin geri skyldu sína. Það var frá mínu sjónarmiði afsakanlegt, að 3 menn þytu upp í stjórnina, ef meira yrði gert, og málin betur undir þingin búin en verið hefir. Hæstv. forsætisráðherra taldi málið illa undirbúið. Það er nú svo. Athugasemdir hans báru þó ekki með sjer, að það væri illa undirbúið. Orð hæstv. forsætisráðherra hnigu sem sje að því, að skiftingin gæti verið heppilegri en gert er ráð fyrir í frv., en frv. sjálfu mótmælti hann ekki. — Eins og jeg gat um áður er upptalningin í 1. gr. ekki bindandi, nema hvað dómsstörf, rjettarstörf og lögreglustjórn snertir. Hæstv. forsætisráðherra taldi sama sem engu ljett af bæjarfógetanum, þótt embættinu væri skift, þar sem aðalverk tollstjórans mætti framkvæma á bæjarfógetaskrifstofunni, án þess að það snerti nokkuð sjálfan embættismanninn, sem á að bera alla ábyrgðina á því. Það getur verið að hann skilji það svo og hafi haft það svo þegar hann var bæjarfógeti, að þau mál ættu ekki að íþyngja honum sjálfum, heldur að eins lúta einum fulltrúa, enda þótt þau væru undir yfirumsjón hans sjálfs. En jeg tel það miður farið og óheppilegt, að svo áríðandi mál sjeu framkvæmd af skrifstofunni, án þess að íþyngja embættismanninum, sem ber ábyrgð þeirra. Hæstv. forsætisráðherra taldi embættið ekki ofstórt, eins og það er nú. Jeg býst við, að fáir kunnugir verði honum sammála um það. Það getur verið, að hæstv. forsætisráðherra hafi ekki þótt það ofstórt handa sjálfum sjer, en jeg tel óvíst, að hann verði svo heppinn að veita það sjer jafnhæfum manni.

Hæstv. forsætisráðherra gat um, að tollmálin hefðu bara verið framkvæmd af skrifstofunni, og sýnir það, að embættið er stórum ofvaxið einum manni, ef bæjarfógetinn tæki tollmálin að miklu leyti í sínar hendur, eins og flestir munu álíta að hann beri skylda til, þótt hann láti aðra reikna fyrir sig. Eitt aðalatriði taldi hæstv. forsætisráðherra vera að ljetta lögreglustjórastarfinu af dómaranum. Einmitt það; ef hann hefir hingað til getað annað því með tollmálunum og öllu öðru, og býst jeg við, að honum þyki því embætti hafa verið þjónað sæmilega, þá ætti ekki síður að vera hægt að anna því án tollmálanna o. fl., sem af embættinu yrði ljett. Jeg skal sjerstaklega benda á annað, sem hæstv. forsætisráðherra drap á, sem sje, að það gæti staðið til, að sjerstakur lögreglufulltrúi yrði skipaður, sem bærinn launaði. Þá yrði það, ekki síst frá sjónarmiði hæstv. forsætisráðherra, hreinasti barnaleikur að fást við dómarastörfin með lögreglustjórninni. Þótt það yrði ekki, þá gætu menn hugsað sjer að breyta megi til og láta lögreglustjórnina heyra undir tollstjórann. Það álít jeg þó ekki betra, því að lögreglustjórinn yrði að vera lögfræðingur, og hann góður, en það þyrfti tollstjórinn ekki endilega að vera.

Hæstv. forsætisráðherra taldi enn fremur ólíklegt, að dómarinn kæmist af með 1 fulltrúa, en það hygg jeg að sje misskilningur. Það á að heita svo, að nú sjeu 2 fulltrúar við þetta mikla embætti, en er í raun og veru ekki nema einn, því að annar starfar aðallega í stjórnarráðinu, og þessi eini er aðallega upptekinn af tollmálunum. — Þegar nú bæjarfógetinn getur komist af með 1 fulltrúa, sem aðallega er upptekinn af tollmálunum, ætti dómarinn að geta komist af með 1 fulltrúa, þegar tollmálin væru tekin undan, og þá ef til vill 2 skrifara.

Hæstv. forsætisráðherra vjek að því, að ef embættinu á annað borð væri skift, þyrfti að þrískifta því, til þess að líkur yrðu fyrir, að því yrði vel gegnt. Jeg get ekki neitað því, að þetta vakti fyrir mjer, en jeg komst að þeirri niðurstöðu, að þess þyrfti ekki, að minsta kosti ekki í bráð. Ef því væri þrískift, skiftist það í dómara-, lögreglustjóra- og tollstjóraembætti. Jeg tel, eins og frv. sýnir, vel hlíta að skifta því í tvent.

Hæstv. forsætisráðherra taldi hjer í frv. ekki farið fram á verulega tollgæslu; en það er ekki fyllilega rjett. Þótt sjerstök tollbúð yrði reist, þá er ekki þeim peningum á glæ kastað. Ef bygt er gott hús á góðum stað í bænum, er ekki með því varpað fje í sjóinn, eins og sumir virðast ætla um það fje, sem rennur til starfsmanna landsins. Húsið hækkaði fremur en lækkaði í verði, eins og öll önnur góð hús á góðum stað, og landssjóður gæti haft góðar rentur af því, þótt það yrði selt aftur. Jeg vil geta þess, að landið hefir þegar ráðist í að byggja stórhýsi fyrir landssjóðsvörurnar, og hefir það orðið alldýrt, en ekki væri meira að ráðast í að reisa tollbúð. Spursmál er, hvort ekki ætti einmitt að nota þetta stórhýsi fyrir tollbúð. Það gæti líka verið gróðavegur að byggja annað. Undir öllum kringumstæðum væri það engin eyðsla á landsfje. Byggingin yrði góð eign, sem landið ætti. Hjer í frv. er gert ráð fyrir skrifstofukostnaði, og er í honum meðal annars húsaleiga fyrir skrifstofurnar. Væru þær hafðar í einhverri opinberri byggingu, yrði þetta ekki tilfinnanlegt.

Forsætisráðherra játaði, að mikið væri unnið fyrir bannlögin með tollgæslunni. Þá ætti Reykjavík að minsta kosti að vera trygg. Hvað menn mundu flytja annarsstaðar á land veit jeg ekki, en ofdjúpt held jeg að hæstv. forsætisráðherra hafi tekið í árinni. Ef vínflutningur á land í Hafnarfirði og Viðey væri jafnalgengur og sjálfur lögreglustjórinn sagði — sem hann reyndar vildi nú leiðrjetta aftur —, skyldi maður halda, að menn vissu meira opinberlega um þau efni, en raun er á, t. d. að lögbrotamenn hefðu verið sektaðir o. s. frv. En síðar á dagskránni er mál, sem hægt verður að minnast nánar á þetta í sambandi við.