06.08.1917
Neðri deild: 26. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1208 í B-deild Alþingistíðinda. (889)
37. mál, skipting bæjarfógetaembættisins í Reykjavík
Frsm. (Einar Arnórsson):
Það er ekki þörf nema stuttrar framsögu. Álit allsherjarnefndar er rækilegt, og þar geta menn sjeð rökin. Niðurstaða nefndarinnar varð sú, að hún leggur til, að frv. verði samþ.
Breytingarnar, sem nefndin leggur til, eru allar smávægilegar, að einni undanskildri. En hún er sú, að lögreglustörfin skuli skilin frá dómaraembættinu. Ástæðan er sú, að dómarastörfin eru svo mörg og mikilvæg, að nefndinni þótti best henta, að dómarinn hefði sem fæst önnur veruleg störf á hendi. Þetta er og álit núverandi bæjarfógeta og forsætisráðherrans núverandi, sem ekki er síður kunnugur málavöxtum. Lögreglustörfin verða þá lögð undir tollstjórann. Það er og í samræmi við álit þessara manna og milliþinganefndar, sem athugað hefir launamál og embættaskipun.
Nefndin hefir ekki gert aðrar breytingar, nema ef nefna skyldi, að framkvæmd laganna skuli frestað lítið eitt; 1. apríl 1918 er sett í staðinn fyrir 1. janúar 1918.