06.08.1917
Neðri deild: 26. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1211 í B-deild Alþingistíðinda. (892)

37. mál, skipting bæjarfógetaembættisins í Reykjavík

Framsm. (Einar Arnórsson):

Hæstv. forsætisráðherra skaut því til allsherjarnefndar, hvort henni þætti eigi óviðkunnanlegt, að dómararnir í yfirrjettinum væru lægra launaðir en gert er ráð fyrir í frv. að undirdómarinn í Reykjavik verði. Jeg játa það, að dómararnir í landsyfirrjettinum eru óhæfllega lágt launaðir. En, eins og hæstv. forsætisráðherra tók fram, þá hefir undirdómari í Reykjavík meira að starfa en yfirdómararnir. Þeir hafa eigi nema 50—60 mál að dæma á ári, en hann framt að 250, auk ýmsra úrskurða, fógetagerða, skiftagerða o. fl.

Jeg kannast við það, að dómararnir í landsyfirrjettinum sjeu oflágt launaðir; en undir allsherjarnefnd getur það ekki heyrt að bera fram tillögu um breyting á launum þeirra. Jeg geri ráð fyrir, að ef Alþingi vildi nú fara að breyta launum þeirra eða annara embættismanna, þá mundi það mál fyrst og fremst hverfa undir fjárhagsnefnd. Það er alveg satt, að það er mikill munur á launum yfirdómaranna, sem hafa ekki í árslaun nema 4800 kr. og 3500 kr., og launum ýmsra annara embættismanna, þar á meðal embættismanna þeirra, sem um er rætt í frv. þessu; en, eins og jeg sagði áðan, getur allsherjarnefnd ekki tekið það upp á sig að fara að athuga laun yfirdómaranna nje annara embættismanna.

Háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) virtist draga það mjög í vafa, að brtt. nefndarinnar væru til bótar. Jeg held, að þær sjeu einmitt til stórbóta. Hugmynd nefndarinnar er sú, að dómari hjer í Reykjavík — eins og reyndar alstaðar — þurfi að vera sem óháðastur og geta gefið sig sem mest að dómarastörfum sínum, án þess að þurfa að vera að vasast í lögreglumálum. En það vita allir, sem hjer eru kunnugir, að lögreglumálin í Reykjavík heimta mikinn tíma; þau heimta svo mikinn tíma, að bæjarfógetinn getur ekki persónulega gefið sig við þeim nema að litlu leyti. Háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) kvað tollstjórann verða að vera lögfræðing, ef sami maður ætti að hafa á hendi bæði lögreglustjórnina og tollstjórnina. Þetta er að vísu satt; en jeg tel það ekki galla, því að jeg efast um, að öðrum mundi fært að hafa á hendi tollstjórnina en lögfræðingum, eða trúandi fyrir henni.

Þetta mál hefir annars verið talsvert lengi á döfinni hjer í þinginu. Eins og getið er um í nefndarálitinu bar þm. Ísaf. (S. St) upp í Ed. á aukaþinginu 1914 tillögu um, að þingið skipaði 5 manna nefnd, er meðal annars skyldi athuga, hvort ekki væri tiltækilegt að setja á fót sjerstaka tollgæslu í öllum kaupstöðum landsins. Deildin samþykti síðan till. til þingsályktunar, þar sem meðal annars var skorað á landsstjórnina að leggja fyrir næsta Alþingi frv. til laga um sjerstaka tollgæslu í Reykjavík. En hingað til hefir stjórnin eigi orðið við þessari áskorun Ed. 1914, um undirbúning og uppburð frv. um þetta mál. Þó hjelt þingið þessu máli vakandi að sínu leyti, því að háttv. þm. Ísaf. (S. St.) kom á þinginu 1915 með fyrirspurn um það, hvort stjórnin hefði gert nokkuð í málinu. Það verður því eigi með sanni sagt, að mál þetta sje minna undirbúið frá þingsins hálfu en fjöldi annara mála, sem framgang hafa fengið. Jeg held því fram, að brtt. nefndarinnar sje til mikilla bóta og eigi því fram að ganga. Náttúrlega er jeg á því, að bæði dómari og tollstjóri eigi að geta gefið sig alla við starfí sínu og eigi að vera sem óháðastir. Það þarf ekki að orðlengja, hve mikilsvert það er fyrir þá báða og störf þau, sem þeir eiga að leysa af hendi, en til þess þurfa þeir að hafa sæmileg laun.