27.08.1917
Efri deild: 40. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1220 í B-deild Alþingistíðinda. (905)

37. mál, skipting bæjarfógetaembættisins í Reykjavík

Magnús Torfason:

Jeg vildi að eins leyfa mjer að gera grein fyrir atkvæði mínu með örfáum orðum.

Fyrir mjer vakir það sjerstaklega, að eftir nýju stjórnarskránni, sje það blátt áfram skylda að gera laun landsyfirdómaranna sæmileg, því að með henni eru tekin af þeim mannrjettindi, sem þeir höfðu áður, sem sje kjörgengi til Alþingis. Þennan frumburðarrjett vilja allir eiga; jeg fyrir mitt leyti vildi ekki afsala mjer honum fyrir nokkurt verð.

En þetta sýnir ljóslega, að embætti þessi eru álitin harla mikils virði fyrir þjóð vora; að öðrum kosti mundi löggjöfin ekki hafa tekið rjett þennan af mönnum þeim, er í þeim sitja. Þess vegna er það siðferðileg skylda að launa þá sæmilega.

Háttv. frsm. nefndarinnar (H. H.) hefir beðið mig að svara til nokkurra atriða, vegna þess, að hann er ekki vel frískur.

Vil jeg þá fyrst benda á, að það er alls ekki rjettlátt, að yfirdómararnir sjeu látnir bíða, sem sjerstök fórnarlömb, eftir því, að launabreytingu verði komið á alment. Enda er ekki víst hve nær það verður. Að minsta kosti líst mjer ekki svo á þetta þing, að því muni verða gefinn gaumur fyrst um sinn.

Nefndin lagði ekki sjerstaka áherslu á, að misrjettið væri mikið, heldur að úr því að háttv. Nd. hefir viðurkent, að laun þessara Víkur-embættismanna megi ekki lægri vera en þetta, og embætti þau, sem hjer er um að ræða, eru meira en hliðstæð, þá ættu launin að minsta kosti að vera lík.

Því verður ekki komið við að taka brtt. aftur, vegna þess, að allsherjarnefndin er ekki öll viðstödd og tíma skortir til athugunar.

Nefndin telur það ekki heldur eins trygt, að launahækkun þessi komist á, ef hún væri borin fram í sjerstöku frv., og ef hún er sett inn í frv. þetta, sjerstaklega þegar svo er á liðið þingtímann.

Annað þarf jeg ekki um þetta mál að segja að svo komnu.