14.07.1917
Neðri deild: 10. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1233 í B-deild Alþingistíðinda. (925)
43. mál, alidýrasjúkdómar
Flm. (Magnús Guðmundsson):
Jeg get tekið undir það með háttv. þm. A.-Sk. (Þorl. J.), að jeg geri ekki að kappsmáli, að málið gangi nefndarlaust áfram, þótt jeg geri ekki ráð fyrir, að nefndin komist að þeirri niðurstöðu, að lögin eigi að haldast í gildi.
Margir hreppstjórar hafa sagt mjer, að þeir hafi orðið að búa skýrslurnar til frá eigin brjósti, því að menn þekkja ekki sjúkdómana, hugsa ekki um að leggja á minnið, úr hverju skepnur þeirra farast, og geta oft ekkert um það vitað. Það er því ekki gott að gefa skýrslur um þetta. Skýrslurnar eru því ónýtt verk fyrir þessi 10 ár, sem liðin eru síðan lögin gengu í gildi. Hagstofustjórinn hefir sagt mjer, að hann treysti sjer ekki til að vinna neitt úr þeim. En, sem sagt, geri jeg það ekki að kappsmáli, hvort málið er sett í nefnd eða ekki, þótt jeg hafi ekki trú á því, að þessi lög geti komið að notum.