03.09.1917
Efri deild: 46. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 1246 í B-deild Alþingistíðinda. (951)
55. mál, ritsíma- og talsímakerfi
Atvinnumálaráðherra (S. J.):
Mjer skilst, að þetta frv., sem hjer liggur fyrir, hafi tekið allmiklum breytingum hjá háttv. samvinnunefnd. Enn fremur virðist mjer, þegar jeg ber nál. saman við álit nefndarinnar í Nd., að það sje miklu betra, einkum vegna þess, að álit nefndarinnar í Nd. er nokkuð orðhart, og að sumu leyti ekki neitt viðfeldið í garð landssímastjórans, fyrir sumar ráðstafanir hans, sem hann þó hefir gert í samráði við landsstjórnina, t. d. það, að kosti einstakra manna sje þröngvað með forgangshraðsamtölunum. Þetta er ekki rjett, af því að þau eru ekki leyfð, þegar III. flokks stöðvar eru inni.
Það, sem hjer skiftir máli, er að einskorða hluttöku landssjóðs í rekstrarkostnaði stöðvanna, eftir því í hvaða flokki þær eru. Í sjálfu sjer ber honum að kosta allar eftirlitsstöðvar og I. og II. flokks skiftistöðvar, en nefndin gerir ekki þann greinarmun, sem nefndin í Nd. vildi gera í sínu áliti Hún leggur til, að III. flokks stöðvar fái styrk, án þess að sá styrkur sje jafnákveðinn og er um I. flokks stöðvar B. og II. flokks. Segi jeg þetta með tilliti til þess, sem háttv. 2. þm. G.-K. (K. D.) tók fram. Með því að kynna sjer mismuninn á tekjum stöðvanna kemur þessi munur ljóslega fram, og er því heppilegast, að samkomulags sje leitað um það milli sveitarstjórnanna og landssjóðs, hve mikið þessar stöðvar skuli styrktar af landssjóði.
Verði slíks samkomulags eigi leitað, þá er hætt við, að þau sveitarfjelög, sem einhvern kostnað bera í þessa átt, reyni að færa sig lengra upp á skaftið. Og komi það á daginn, að þau hætti kann ske alveg að bera kostnaðinn, hygg jeg, að svo geti farið, að hann verði helst til þungur á landssjóði.
Sveitarfjelög leitast ávalt við að ná sem bestum kostum hjá þeim, er um símalínurnar eiga að sjá. Jeg legg því til, að ekki sje lengra farið um III. flokks stöðvar en þegar er ákveðið.