03.09.1917
Efri deild: 46. fundur, 28. löggjafarþing.
Sjá dálk 408 í B-deild Alþingistíðinda. (96)
1. mál, fjárlög 1918 og 1919
Magnús Torfason:
Jeg hefði búist við því, þegar fjárlagafrv. yrði lagt fyrir þessa háttv. deild, að þá myndi stjórnin öll vera viðstödd, og hefði jeg haldið, að það væri að minsta kosti eitthvað, sem stjórnin myndi þurfa að taka fram, til athugunar fyrir væntanlega nefnd í málinu, en það lítur ekki út fyrir, að því sje að heilsa. (K. D.: Má ske, að þeir viti ekki af því, að málið sje komið til umræðu.). Jeg gerði ráð fyrir, að hæstv. forseti myndi sjá um, að ráðherrarnir fengju vitneskju um það. (Jóh. Jóh: Forsætisráðherra er að halda ræðu í Nd.).
Það er í fyrsta sinni, að fjárlög koma fyrir þessa háttv. deild eftir að ný skipun hefir orðið á henni, og eins og við vitum allir hefir þessi háttv. deild engu síður orðið ímynd og skuggsjá þjóðarviljans hjer á landi heldur en hin deildin, þar sem hún að nokkru leyti er valin með allsherjaratkvæði, og ætti þess vegna að vera úrval af bestu mönnum þjóðarinnar að nokkru leyti.
Jeg fyrir mitt leyti hefi litið svo á, að ekki væri nema eðlilegt og sjálfsagt, að hvor deildin fyrir sig hefði tækifæri til að hafa alment tal af stjórninni, og eins að stjórnin myndi hafa gott af því að geta fengið að vita um óskir manna og vilja, alveg eins í þessari hv. deild sem hinni, því að við vitum, að það er ýmislegt, sem er á seiði hjer í þinginu, sem ekki kemur fram beint í lagafrumvarpaformi, og hins vegar víst, að þingmenn finna ekki ástæðu til að fara að koma með sjerstakar þingsályktunartill. eða fyrirspurnir um mál, enda þótt ástæða væri til að hreyfa þeim eitthvað.
Í þetta sinn hjelt jeg, að fremur hefði verið ástæða til þess að minnast á, hvernig stjórn landsins hefir farið úr hendi, heldur en áður, einmitt af því, að stjórninni hafa aldrei verið lagðar þyngri skyldur á herðar en í þetta sinn.
Stjórnin var í vetur aukin og styrkt til að ráða fram úr ófriðarvandræðunum, og jeg vil segja, að aðal- og einasta hlutverk stjórnarinnar hafi átt að vera það að sjá okkur farborða. Jeg fyrir mitt leyti legg svo mikla áherslu á það, að þótt engar tillögur aðrar hefðu komið frá stjórninni um bjargráð, og svo fjárlögin, þá hefði jeg verið ánægður, ef það hefði farið vel úr hendi.
Nú ætla jeg ekki að fara að leggja neinn dóm á það, hvernig þessum bjargráðum hefir verið fullnægt. Menn vita það, að stjórnin hefir átt við ýmsa erfiðleika að stríða, og þess vegna verðum við líka að fara í það með allri gætni í dómum vorum. Og þingið hefir ekki fengið að vita neitt um gerðir stjórnarinnar, jafnvel ekki þær, sem engin sjáanleg ástæða var til þess að halda leyndum. En þótt stjórnin sje nú svona þoku vafin, má þó gera sjer nokkra grein fyrir einstöku atriðum, og af þeim hefi jeg hugsað mjer að benda á tvö atriði, sem sjerstök ástæða er til að minnast á.
Grundvöllurinn undir öllum bjargráðum landsins á þessum tímum er aðflutningurinn á nauðsynjavörum. Það er því auðsætt, að framar öllu átti að sjá landinu fyrir nægum skipakosti, nægum tækjum til þess að flytja alt, sem nauðsynlega hefir þurft með, til landsins. Mjer hefir ekki auðnast að fá að sjá skýrslu landsstjórnarinnar til bjargráðanefndanna um þetta atriði, en mjer virðist ýmislegt benda á, að hún hafi verið æði sein í snúningunum. Ekki skorti þó á, að hún hefði töluvert aðhald eða uppörvun frá þinginu um að hafa hraðann á. Síðustu orð þingmanna til stjórnarinnar á þinginu í vetur voru: Það sem þú gerir, ger þú skjótt. Og það var því fremur ástæða til þess að leggja áherslu á þetta, að öllum skynbærum mönnum var ljóst, að alt mundi verða því dýrara og aðflutningar því erfiðari, sem lengur drægist. En ekki verður annað sagt en að þetta hafi alt gengið seint og sígandi. Við það verður þó að kannast, að sjeð hefir verið fyrir þörfum landbúnaðarins, en þarfir sjávarútvegsins hafa hins vegar orðið tilfinnanlega út undan. En það tjáir nú víst ekki að sakast um orðinn hlut, en jeg vildi óska þess, að stjórnin skýrði nú þegar frá, hvaða ráðstafanir hún hefir með höndum til þess að sjá um, að sjávarútvegurinn fari ekki í kalda kol. Öllum hlýtur að vera ljóst, hvað í veði er, ef ekki er vel og skjótlega úr því ráðið, og skal því ekki fleirum orðum að því eytt. Því örðugra sem varð um aðdrætti, því nauðsynlegra var, og því meiri hvöt ætti það að vera fyrir stjórnina að sjá um, að úthlutunin færi vel fram. Í öðrum löndum er meiri og meiri gaumur gefinn þessari hlið málsins, eftir því sem þrengist um nauðsynjar.
Jeg gerði fyrirspurn út af þessu á þinginu í sumar, og færði rök fyrir því, að vöruúthlutun stjórnarinnar hefði verið ábótavant.
Hefði nú mátt vænta þess, að stjórnin hefði reynt að bæta ráð sitt, og jeg veit til, að hún hefir að sumu leyti gert það, þótt því verði ekki neitað, að enn sjeu þar talsverðir þverbrestir á. Á jeg hjer sjerstaklega við úthlutunina á steinolíu Steinolíufjelagsins, og er það aðallega hennar vegna, að jeg hefi staðið upp við þessa umræðu.
Búast hefði mátt við, að stjórnin hefði keypt alla steinolíu, sem til landsins hefir flust síðan, samkvæmt bendingu frá bjargráðanefnd og dagskrá þeirri, sem samþykt var hjer í háttv. deild, er fyrirspurn mín var á döfinni. En þetta hefir stjórnin látið fyrir farast. Jeg veit ekki betur en að Steinolíufjelagið sje látið nokkurn veginn einrátt um það, hvernig með steinolíuna er farið. Það ræður, hvert hún fer, hver fær hana og hvernig hún er send. Hefir margs konar misrjetti af þessu hlotist. Olíunni hefir ekki verið úthlutað eftir þörfum, og fyrir bragðið hefir hún hækkað mjög í verði frá því, sem vera þurfti.
Jeg veit, að stjórnin hefir haft einhverjar ástæður til þess að fara þannig að, og vil því í allri vináttu óska skýringar á, hvaða nauður hafi rekið hana til að láta Steinolíufjelagið vafsast þannig með steinolíuna. Jeg bið um skýr rök fyrir þessu, ekki að eins fyrir mig sjálfan, heldur og fyrir menn í mínu kjördæmi og víðar um land.