24.06.1918
Neðri deild: 54. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 280 í B-deild Alþingistíðinda. (100)
4. mál, almenn dýrtíðarhjálp
Frsm. (Sigurður Stefánsson): Svo er nú komið um þetta mál, að það er komið hingað í því nær sömu mynd og það fór. Eins og háttv. deild er kunnugt, var meiri hl. bjargráðanefndar ekki ánægður með frv., er það var fyr meir til umr. hjer, og þar sem það er enn þá í sömu mynd, leyfir meiri hl. bjargráðanefndar sjer að koma enn þá einu sinni með brtt. Aðalmunurinn á brtt. meiri hl. bjargráðanefndarinnar og frv. er sá, að til þess „að afstýra verulegri neyð af matvælaskorti“ vill meiri hl. veita lán, en frv. hallærisstyrk eða gjöf. Hvor leiðin, sem farin er, verður landssjóður, eins og fjárhag hans er nú komið, að taka lán til þessarar dýrtíðarhjálpar. Að vísu mun ekki rjett að tala hjer um hallærisstyrk, því að þennan styrk eða gjöf á ekki að veita þegar hallærið er komið, heldur á að veita hann til þess að afstýra verulegri neyð eða hallæri. Mjer finst það nokkuð undarlegt að vilja gefa mönnum fje til að „afstýra hallæri“, því að verði þeim tilgangi náð með hjálpinni, þá eru líkurnar sem 10:1 fyrir því, að lánahjálpin verði endurgreidd að fullu, en ef hjálpin er veitt sem styrkur, þá eru peningarnir með öllu tapaðir landssjóði. Þetta er grundvallarmismunurinn á skoðunum meiri hl. bjargráðanefndar og hæstv. stjórnar. Jeg tel það skyldu háttv. Alþingis að líta á fjárhag landsins, er um slík stórmál og þetta er að ræða, og ef stjórnin hefir skýrt rjett frá fjárhagnum hjer í deildinni — og engin ástæða er til þess að efa það — þá ættu þm. í lengstu lög að reyna að forða landssjóði frá því að gripa til þeirra örþrifaráða, að búta bann niður í hallærisgjafir, og það áður en nokkurt verulegt hallæri er að höndum borið. Dýrtíðarlánin koma alveg að sömu notum og gjafirnar, að því er til þess kemur að afstýra „verulegri neyð“. Gjafirnar forða mönnum ekkert fremur frá hallæri en lánin, en lánin getur landssjóður fengið að fullu endurgreidd, er í ári batnar og gjaldþol landsmanna vex. Lánaleiðin er því og verður eina rjetta leiðin, þótt hún hafi ekki til þessa fundið náð fyrir augum þingsins.
Hæstv. stjórn gerði ráð fyrir því í ástæðunum fyrir frv. sínu, að þessar dýrtíðargjafir, 5 kr. á hvern landsmann, gætu numið 450 þús. kr. Sú upphæð, sem landssjóður kemur til með að lána eftir vorum till., getur að vísu orðið helmingi meiri. Vjer gerum ráð fyrir, að landssjóður láni 10 kr. á hvern íbúa, móti því, að sveitar- eða bæjarstjórn hafi áður lagt fram 10 kr. á hvern íbúa, auk hinna venjulegu útgjalda. Það má því með rökum segja, að ef viðhöfð er aðferð stjórnarinnar, þá sje of fjár kast að á glæ, án allrar endurgjaldsvonar, þar sem með lánsaðferðinni er full trygging fyrir endurgjaldi, er í ári batnar. Þetta vil jeg biðja háttv. þm. að athuga vel, áður en til atkvæða kemur.
Auk þessa verðum vjer að líta á afstöðu þessa máls til landsmanna. Hallærisgjafirnar eru síst til þess fallnar að auka sjálfstæði þeirra eða viðleitni einstaklinganna til þess að bjargast á eigin spýtur; þær eru nokkurskonar sveitarstyrkur. Þetta er því ekki leiðin til þess að efla hug og dug einstaklinganna, heldur ala þær upp í mönnum vesalmensku og amlóðaskap og vantraust á sjálfum sjer. Ef þingið því fellst á þessa aðferð stjórnarinnar, gerir það gyllingar til þess að gera landsmenn að þurfamönnum landssjóðs, og landssjóðinn, sem verður að taka lán til þessarar gjafahjálpar, að enn ver stöddum skuldunaut, og það ef til vill þeirrar þjóðarinnar, sem vjer knýjum nú fastast á um aukið sjálfstæði. Þessa annmarka er lánaleiðin laus við.
Það er ætlast til þess, að þessi lög gildi til eins árs. Meiri hlutinn verður að telja það nokkuð mikla bölsýni, að dýrtíðin gangi á þessu ári svo milli bols og höfuðs atvinnuvegum og fjárþoli þjóðarinnar, að til þess örþrifaráðs skuli þurfa að grípa, að útbýta gjöfum. Ef slík neyð yrði, þá er jeg á sama máli og hæstv. fjármálaráðherra var hjer á dögunum, að öll sú hjálp, sem heitið yrði eftir frv. og till., hvort heldur sem gjöf eða lán, kæmi að engu gagni, og þá yrði auðvitað stjórnin að grípa til einhverra þeirra ráða, og þó að það yrðu örþrifaráð, til þess að forða mönnum frá hungurdauða. En jeg verð nú þvert á móti að álíta, og er jeg ekki talinn bjartsýnn maður, að það verði meiri hluti landsmanna, þetta ár sem lögin eiga að gilda, sem stendur jafnrjettur, hvort sem hann fær 5 kr. fjárstyrk eða ekki. Sama má að vísu segja um þetta 10 kr. lán, en sá er þó munurinn, að landssjóður fær þær aftur, eftir að þær hafa gert sitt gagn, en þessi 5 kr. smágjöf er ekki annað en sundurbútun landssjóðs til óverulegrar hjálpar, sem þó getur numið alt að 1/2 milj. króna og landssjóður þannig fleygir út, án þess að þess sjáist nokkur staður. Þessi styrkur er því, eins og áður er getið, með öllu óendurkræfur fátækrastyrkur, sem þó er veittur, eftir því sem greinir í frv., ekki til þess að bjarga í verulegri neyð, heldur til þess að afstýra verulegri neyð. En verði styrkurinn til þess, að menn standi betur að vígi gagnvart dýrtíð og óáran, þá á að borga hann aftur þegar gjaldþolið vex. Jeg vil leyfa mjer í þessu sambandi að minna á hallærisárin, sem gengu yfir landið nýlega, 1883—88. Þá var svo mikið hallæri, að mönnum lá við dauða af hungri og harðæri. Ár eftir ár var fiskleysi umhverfis Faxaflóa, og grasbrestur var um alt land. Menn geta því nokkurn veginn gert sjer í hugarlund, hvernig líðan almennings víða á landinu hefir verið. Þegar þetta harðæri steðjaði að, hafði þjóðin fyrir skömmu byrjað þjóðarbúskap sinn, og þótt svo ilt væri ástandið, þá datt samt stjórninni aldrei í hug að gefa einn eyri til hallærishjálpar, en hún veitti upp á sitt eigið eindæmi, og án þess svo mikið sem að spyrja þingið, marga tugi þúsunda að hallærisláni. Það kom heldur engri sveitarstjórn til hugar að biðja stjórnina um gjafir til þess að geta klofið örðugleikana, en þær báðu um lán, og það var þeim veitt, og veit jeg ekki betur en að öll þessi lán hafi verið endurborguð. Þá var að vísu ekki samskonar dýrtíð í landi og nú, en skortur á lífsnauðsynjum var miklu meiri en enn er orðið að þessu sinni, en undir eins og hann var hjá liðinn og í ári batnaði, þá streymdu innborganir til landssjóðsins, svo að á öllum þessum lánum mun hann, þegar öll kurl voru komin til grafar, hafa tapað sáralitlu fje Jeg held nú, að vjer getum lært mikið á reynslu þessara ára, sem voru sannkölluð hallærisár. Reynslan hefir sýnt oss, að lánaleiðin reyndist þá mjög hentug. Þá bjó líka landið svo vel, að ekki þurftum vjer að taka lán erlendis til þess að geta veitt þessa hjálp. En aftur á móti nú, þegar landssjóðurinn er kominn í óbotnandi skuldafen, höfum vjer stjórn, er dettur slík fásinna í hug, að ausa út fje landsins í gjafir, til þess að afstýra hallæri. Jeg verð því að segja, að það sje ekki vansalaust fyrir þingið að vera að „monta“ sig með að heita mönnum hallærisgjöfum, sem landið verður að taka lán til að geta veitt; hitt vansaminna, að lána mönnum fjeð, eins og ástæður vorar eru nú. Mjer virðist það skrítinn búskapur að taka lán með háum vöxtum til þess eins, að gefa peningana, og mjer er nær að halda, og er meira að segja sannfærður um, að bændur, sem sæti eiga í þessum sal, mundu ekki telja það búhnykk að fara svo að ráði sínu. Auðvitað má gera ráð fyrir því, að þótt þetta næsta ár verði ekki svo erfitt, að hallæri standi fyrir dyrum, þá geti næstu ár orðið svo erfið, að erfitt verði um endurgreiðslu lánanna, en þá er hægurinn hjá fyrir þing og stjórn að haga sjer eftir því við skuldunautana og veita þeim lengri borgunarfrest, og í versta tilfelli að gefa jafnvel upp lánin. En jeg fyrir mitt leyti álít, að á næstu árum verði meiri líkur fyrir því, að lánin borgist, heldur en að þau tapist með öllu, og því verð jeg að álíta þessa leiðina æði miklu hyggilegri búskaparaðferð fyrir landssjóðinn. Það má ef til vill hafa það sem keyri á brtt. vorar, að þessi 10 kr. lánsheimild sje helmingi stórtækari á fje landssjóðs heldur en 5 kr. gjafaheimild stjórnarfrv., en þessu er því að svara, að landið stendur sig miklu betur við að taka lán, til þess að lána það út aftur með hæfilegum vöxtum, heldur en að taka helmingi minna lán, til þess að útbýta því sem smágjöfum. Þá finst mjer, að hjer komi til athugunar, hver afstaða sveitar- og bæjarstjórna verði til þessara laga, og jeg verð að álíta, að ef samþ. verður styrkveiting stjórnarinnar, þá veiti hún minni tryggingu fyrir því, að hjálpin komi niður á rjettum stað og þar, sem þörfin er mest, heldur en ef lánaleiðin er farin.
Þessi gjafaleið freistar efnaðri sveitarfjelaga til fjárframlaga, þótt engin veruleg neyð sje fyrir dyrum, til þess að ná í þennan styrk. Efnamennirnir „spekúlera“ í því að taka lán fyrir sveitina og ná í landssjóðsstyrkinn, til þess að ljetta á sjer gjöldunum til sveitarinnar, sem menn verða að greiða eftir efnum og ástæðum, og koma því mest á efnamennina, án þess að fátæklingarnir beri sanngjarnan hlut frá borði. Á þessu er bættan minni, ef lánaleiðin er farin. Efnamennirnir verða þá að bera mest af þeirri byrði, sem á sveitarfjelagið legst, fyr eða síðar, og þá er lítil freisting fyrir nokkurn mann að stuðla að því að ná í fje úr landssjóði, og lítil von um að geta grætt á því, þegar um upphæð er að tefla, sem verður að endurborga að fullu. Þess vegna verður meiri hl. bjargráðanefndar að álita, að sveitarfjelögin tefli meir á fremsta hlunn með að bjarga sjer sjálf, ef þessi leið er farin. Fátækum sveitarfjelögum gæti að vísu verið það þarfur ljettir, að fá þennan landssjóðsstyrk, en þau yrðu þá að leggja mjög hart að sjer til þess að verða hans aðnjótandi. Ríkari sveitarfjelög geta blátt áfram haft hann að gróðafyrirtæki fyrir sveitina, eða til hlunninda fyrir efnaðri menn í sveitarfjelögunum.
Þegar á þetta er litið, skoðar meiri hl. nefndarinnar þá leiðina, að lána sveitarfjelögunum 10 kr. á mann, í stað þess að gefa þeim 5 kr. á mann, bæði rjettlátari og hollari, og um leið er meiri trygging fyrir, að hún komi að notum og minni freisting fyrir sveitarfjelögin til að leita fjár úr landssjóði um skör fram. — Jeg segi hollari? — Það er hollara fyrir sjálfstæðistilfinningu þjóðarinnar, að þeim, sem hjálpar þurfa, sje veitt fje að láni til að sjá sjer borgið, í stað þess að gera landsbúa að þurfalingum landssjóðs.
Jeg get ekki búist við, að þessar brtt. verði samþ., heldur en fyr, en meiri hl. nefndarinnar vildi samt koma fram með þær til þess að gera enn eina tilraun til að koma málinu í viðunandi horf. En við getum ekki álitið, að málið komist í viðunandi horf, nema gengið sje inn á lánaleiðina í einhverri mynd. í háttv. Ed. vildi nefndin ekki hætta fyr en í fulla hnefana við tilraunir til að koma frv. í þetta horf, í stað þess að fylgja fram frv. stjórnarinnar, og í þessari háttv. deild er sjálfsagt að reyna það til hins ítrasta.