17.05.1918
Efri deild: 21. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 975 í B-deild Alþingistíðinda. (1000)
45. mál, útsæði
Atvinnumálaráðherra (S. J.):
Jeg vil hjer með gera það að till. minni, að þessi þingsályktunartill. sje athuguð af bjargráðanefnd þessarar deildar. Málið þarf í nefnd, því að það þarf að orða 2. tölulið till. á einhvern annan hátt, svo að fjárveitingaheimildin nái til hvorttveggja atriðanna, sem um ræðir. Jeg vildi að eins benda á þetta fyrir nefndina, sem fær till. til athugunar.