24.06.1918
Neðri deild: 54. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 286 í B-deild Alþingistíðinda. (101)

4. mál, almenn dýrtíðarhjálp

Forsætisráðherra (J. M.):

Mjer þykir leitt, að ekki skuli vera hægt að koma á einhverju samkomulagi um þetta atriði milli þings og stjórnar og milli þingmanna innbyrðis. Mjer sýnist þessu máli komið í það óefni, að ástæða sje til að reyna enn þá að finna einhverja leið til samkomulags. Jeg lít svo á, að vel hefði mátt biða með að samþ. þessi lög þangað til rjett fyrir þingslitin. Fyr þarf ekkert á lögunum að halda. Það væri ef til vill líka rjettast að geyma að samþ. þau þangað til allra síðast.

Jeg verð að segja það, að jeg er óánægður, bæði með frv., eins og það kemur frá háttv. Ed., og líka með till. meiri hl. bjargráðanefndar. Mjer þykir leitt að heyra þingmenn nú vera að fjargviðrast út af því og berjast á móti því með hnúfum og hnefum, eins og það sje einhver fjarstæða, að landssjóður rjetti mönnum hjálparhönd til að bera dýrtíðarbyrðarnar. Þótt þingið veiti nú tæpa 1/2 miljón til dýrtíðarhjálpar, þá er það ekki neitt óheyrilegt, þegar þingið í fyrra veitti svipaða upphæð í sama tilgangi, að eins til að setja niður verð á einni vörutegund og það þó ekki nema að nokkru leyti. Það er alveg samskonar, sem farið er fram á í þessu frv.; og það, sem gert var í fyrra, með niðurfærslu kolaverðsins. Nú eru allar vörur dýrari en þær voru þá, og því er enn meiri ástæða til áð lækka verðið. Það er ekki nema eðlilegt, fyrst að haldið var inn á þá braut að veita mönnum hjálp, að haldið sje áfram á þeirri braut.

Jeg skal játa það, að frv., eins og það kom frá háttv. Ed., er nær stjórnarfrv. en till. meiri hl. bjargráðanefndar. En inn í það hefir þó verið sett það atriðið, sem stjórnin vildi sjerstaklega varast, en það er heimild til þess að lána úr landssjóði. Eins og frv. liggur nú fyrir, ætlast það til þess, að landssjóður bæði gefi og láni sveitarfjelögunum fje til hallærisráðstafana. Jeg verð að telja þetta mjög varhugavert atriði í lögunum og töluvert tvísýnt um, að landssjóður geti lánað fje, svo að nokkru nemi. Hann þarf fyllilega á öllu sínu lánstrausti að halda.

En það, sem lakast er við frv, eins og það kom frá Ed., er það, að eftir orðalagi þess þurfa sveitarfjelögin ekki að leggja neitt fram frá sjálfum sjer til þess að fá landssjóðsstyrkinn. Ef þau að eins taka lán, sem nemur 15 kr. á mann í sveitinni, og kaupa fyrir það vörur, til þess að útbýta meðal þeirra, sem hjálpar þurfa, þá geta þau látið sinn part sem lán, en útbýtt þessum 1/3, sem landssjóður leggur til sem gjöf. Þetta gæti orðið til þess, að landssjóður legði fram fje án þess að brýn þörf kallaði að. Það er hætt við því, að sum sveitarfjelög reyndu til þess að taka þessi lán, til þess að græða á þeim styrkinn, án þess að þeim væri það óhjákvæmilegt. Það stendur að vísu í frumv., að lánin eigi að vera tekin til þess að afstýra verulegri neyð. En það gæti orðið erfitt að líta eftir því, hve veruleg neyð væri fyrir dyrum, og hætt er við, að einhverju sveitarfjelagi yrði veittur styrkur, sem ekki hefði þess brýna þörf.

Jeg þarf svo ekki að tala meira um þetta mál. Jeg sje enga frágangssök að ganga að frumv. stjórnarinnar. Það heldur að eins áleiðis sömu brautina og lagt var út á í fyrra. Aftur á móti finst mjer frágangssök að lána fje úr landssjóði, því að landssjóður á nóg með sig. Það er að minsta kosti varla heppilegri leið en hitt.

Sem sagt, þetta er frumv., sem ekkert liggur á, fyr en rjett fyrir þinglokin, og er því rjettast að samþykkja það ekki fyr en allra síðast, svo að menn geti hugsað um það til síðustu stundar. Ef til vill getur líka eitthvað komið fyrir á þeim tíma, sem gæti haft áhrif á það, hvernig frá því yrði gengið. (S. St.: Hve nær koma þinglokin?). Jeg geri ráð fyrir, að menn viti það að minsta kosti 3 eða 4 dögum áður en að þeim kemur, þótt ekki sje hægt að segja neitt um það enn þá. Það er varla hægt að búast við því, að þau beri svo bráðan að, að ekki verði hægt að afgreiða málið, og tæplega kemur að þeim fyrsta hálfa mánuðinn, og á þeim tíma kynni að vera hægt að finna einhverja leið til samkomulags.

Jeg tel varla hægt að bjóða upp á lán úr landssjóði, eins og hann þarf mikið á fje að halda. En ef þingið vill nú kippa að sjer hendinni með að hjálpa, sem það hefir áður útrjett, þá verður það að vera þess sök og á þess ábyrgð, ef illa fer. — Jeg fyrir mitt leyti verð að vera á móti því að bjóða upp á lán úr landssjóði, eins og hagur hans stendur nú.