25.05.1918
Efri deild: 27. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1019 í B-deild Alþingistíðinda. (1055)

52. mál, rannsókn mómýra

Atvinnumálaráðherra (S J):

Eins og jeg tók fram, þá var þingsál. þessi samþykt í háttv. Nd , en feld hjer í Ed. með eins atkvæðis mun, og af atkvæðafjöldanum var það sýnt, að hún hefði orðið samþykt í sameinuðu þingi Og þótt háttv. þm. Snæf. (H. St.) vilji eigi taka tillit til vilja báttv. Nd., þá vill stjórnin eftir atvikum gera það. Það er því alls ekki rjettmætt að koma með ávítur fyrir það, að þessum manni var veittur þessi styrkur.