21.06.1918
Sameinað þing: 4. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1023 í B-deild Alþingistíðinda. (1063)
52. mál, rannsókn mómýra
Guðjón Guðlaugsson:
Jeg er nú ekki sammála háttv. þm. S.-Þ. (P. J.) um það, að nefndunum beri ekki talsvert á milli, því að það er talsverður skilsmunur á því, að vilja leggja fram ótakmarkað fje, hvernig sem því er varið, eða takmarkað, og það því fremur, sem upphæðin tiltekna er lág.
Nefndinni í Ed. fanst ekki nauðsynlegt, nje heldur taldi hún það ráðlegt, eins og fjárhagur landsins stendur nú, að halda till. Nd., um að leggja fram ótakmarkað fje. Svo var líka hitt, að Ed. fanst ekki hjer svo mikil nauðsyn á, því að vjer vitum, að þetta sumar er þegar hálfnað, og ekkert er farið að gera í þessu enn, en hins vegar vitanlegt, að reglulegt þing verður háð næsta ár. Og af því að um stuttan tíma er að ræða til rannsóknarinnar á þessu ári, þá er tækifæri fyrir næsta þing til þess að auka við fjeð, ef það skyldi reynast of lítið. Þó hefðum vjer getað skilið, að hv. bjargráðanefnd Nd. hefði komið með brtt. um að hækka fjárveitinguna eitthvað, en láta hana þó vera takmarkaða. En hún kippir henni nú aftur í sama horf og hún kom í frá hv. Nd. áður.
Það er líka annað, sem skilur á milli nefndanna, og það er að Ed.nefndin tekur það ekki fram, hvaða móvinsluaðferð skuli notuð, er til kæmi. Það er af þeirri ástæðu, að bjargráðanefnd Ed. vantar þekkingu á, hver aðferðin sje best, og álítur því út í bláinn að tiltaka hana nú þegar, en telur tímann nógan til þess að taka þá aðferð, er reyndist best, er byrjað væri á verkinu. Því að þótt þessi Lavals-aðferð kunni nú að taka öðrum samskonar aðferðum fram, er reynslan ákaflega stutt, og þar að auki fáir til frásagnar um, hverskonar reynsla það er. Og gæti þá farið svo, að þar sem þetta mál er enn á gelgjuskeiði í öðrum löndum, og mestar hafa orðið framfarir í því síðan stríðið hófst, þá má búast við, að breytingar komi árlega, svo að það, sem var best í ár, reynist ekki nema í meðallagi næsta ár, og annað sje þá komið, sem betra er.
Hvað viðvíkur þessari fjárupphæð, sem þessi Lavals-aðferð mundi krefjast, er lagt væri út í fyrirtækið, þá nefndi háttv. þm. S.-Þ. (P. J.) ½ millj. kr. En jeg held, að hann hefði ekki þurft að brjóta miljónina sundur. Hálf miljón kr. gæti verið nóg í „normal“ ári, en eftir þeim upplýsingum, sem efri deildar nefndin hefir fengið þar að lútandi, þá er það óhugsandi nú. Var honum því alveg óhætt að hafa miljónina heila. Hvað þessa rannsókn snertir að öðru leyti, þá virtist Ed.nefndinni, sem hún mundi ekki verða eins yfirgripsmikil og háttv. Nd. virtist álíta, því að það mundu vera að eins örfáar mómýrar, sem til nokkurra mála gæti komið að rannsaka í þessu augnamiði. En um almenna rannsókn á mómýrum hljóðaði till. Nd. ekki, heldur að eins um rannsókn þar, sem hugsanlegt mundi að hafa Lavals-aðferðina.
Og eftir upplýsingum frá þeim manni, er gengist hefir fyrir þessu máli hjer á landi, þá eru það engar smáræðismýrar, sem um getur verið að ræða. Þær þurfa að vera fleiri hundruð dagsláttur að stærð, og mólagið í þeim verður að vera jafnt og ekki minna en 2 metra á þykt upp og ofan. Slíkar mýrar munu ekki vera víða, og er því óþarfi að fara út í almenna rannsókn mómýra. Auk þess virðist svo, sem það sje ekki um skör fram, þótt einhver takmörk sjeu sett á fjárframlög úr landssjóði, því að mörgum mun virðast, sem meðferðin á fje til þeirra útgjalda, sem ekki hafa verið ákveðin af þinginu, hafi verið helst til lítið takmörkuð af stjórninni. Þess er líka að geta, að þótt eitthvað lítilfjörlegt kynni að vanta til, þá væri ekki loku skotið fyrir einhverja viðbót, svo að ekki þyrfti að hætta við rannsóknina í haust, ef að eins væri eftir að rannsaka svo sem vikutíma. Stjórnin hlyti að hafa fult vald til að halda verkinu áfram upp á sitt eindæmi og veita það fje, sem þyrfti, til viðbótar, og taka það svo upp í fjáraukalög á næsta þingi. Því myndi það ekkert gera til, þótt nokkur hundruð krónur eða jafnvel þúsund vantaði til.
Af þessum ástæðum var það, að nefndin í Ed. breytti till., og mun hún og væntanlega öll Ed. halda fast við þá till., er hún samþ. upphaflega, en vera móti brtt.