21.06.1918
Sameinað þing: 4. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1026 í B-deild Alþingistíðinda. (1064)

52. mál, rannsókn mómýra

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Háttv. framsögumenn deildanna hafa nú gert grein fyrir því, hver frá sínu sjónarmiði, hver sje efnismunurinn á þessum till. og hvað á milli ber. En jeg vildi ekki, að þetta mál færi svo frá þinginu, að ekki væri hægt að fá góðan stuðning í umræðum málsins, ef eigi í tillögunni sjálfri hvernig haga skuli framkvæmdum till., hver skoðunin sem ofan á verður. Það verður ekki sjeð, hvort það vaki fyrir mönnum, að fá skuli sjerfræðing frá útlöndum til rannsóknarinnar, eða hvort stjórnin skuli leita fyrir sjer innanlands hjá þeim manni eða mönnum, sem hún hyggur færa um þetta. Jeg veit nú ekki, hvort völ er á nokkrum innlendum manni, er fær sje að taka að sjer þessa rannsókn, til þess að það augnamið náist, sem vakir fyrir nefndinni, að svo ábyggileg rannsókn fáist, að byggja megi á henni móvinslu í stórum stíl. Ef um mann með þeirri sjerþekkingu væri að ræða hjer heima, yrði það auðvitað ódýrara og umsvifaminna en að fá sjerfræðing útlendan.

Vildi jeg því, að háttv. framsögumenn ljeti í ljós, hvað fyrir þeim vakir í þessu efni. Sje það nú meiningin að útvega útlendan mann, myndu þær 3.000 kr., sem háttv. Ed. vill leggja fram, ekki hrökkva langt. En sje hægt að fá innlendan mann, getur vel verið, að 3.000 kr. nægi, og vitanlega er betra að hafa ákveðna fjárhæð við að styðjast, er til framkvæmda kemur, en að hún sje alveg óákveðin og ótakmörkuð.

Óska jeg því eftir bendingu í þessa átt.