21.06.1918
Sameinað þing: 4. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1032 í B-deild Alþingistíðinda. (1069)

52. mál, rannsókn mómýra

Bjarni Jónsson:

Jeg er orðinn vonlaus um, að þetta þing geri nokkuð að gagni í vandræðamálum þjóðarinnar. Það eitt væri gagn, sem hjálpaði mönnum á einhvern hátt til að rísa undir þeirri neyð, sem stafar af hækkuðu verðlagi á útlendum vörutegundum, t. d. með því að gera ráðstafanir til að afla þess innanlands, með minni tilkostnaði, sem kaupa verður uppskrúfuðu verði frá útlöndum. Jeg tel það gott, hvort sem samþ. verður till. Ed. eða brtt. Nd., að rannsókn mómýranna verði framkvæmd í sumar, og að stjórnin láti svo Þorkeli Clementz eða þeim, sem stendur fyrir móvinslu með Lavals-aðferðinni, allar skýrslur í tje, þegar að lokinni rannsókn, svo að þeir geti reiknað út, hvort borgi sig að setja á stofn þesskonar verksmiðju á næsta vori. Ef á að bíða með rannsóknirnar og heimild til vjelakaupa til næsta vors, þá er næsta ár tapað frá framkvæmdunum, eins og árið í ár er tapað og árið í fyrra. Þá væru farin 3 ár af vandræðatímanum, sem eitthvað hefði átt að gera á.

Viðvíkjandi rannsóknunum verð jeg að segja það, að það getur varla verið vandi að finna þá menn hjer innanlands, sem geta stungið bor niður í mýri eða kunna að taka af bornum það, sem á honum tollir, og senda efnarannsóknarstofunni það, til að rannsaka, hvaða efni finnast í því. Þá er ekki mikill vandi að mæla, hve margar stikur það eru, sem mólagið liggur undir, og hve þykt lagið er, og gæta þess, að stinga bornum niður nógu þjett, til þess að fullvissa sig um, að lagið sje ekki götótt. Annað er það ekki, sem gæta þarf við þessar rannsóknir. Svo geta vjelfræðingarnir látið í tje skýrslur um það, hverjar vjelar þurfi til þess að vinna þann mó, sem fyrir hendi er, og hve mikið þær muni kosta. Hitt hjelt jeg að væri öllum ljóst, að ef hægt er að fá þann mó unninn hjer í landi, sem skip geta gengið fyrir kringum landið, þá stöndum vjer alt öðruvísi að vígi gagnvart útlendingum en vjer nú gerum.

Eins og jeg hefi sagt, þá vona jeg ekki eftir því, að þingið geri neitt að gagni í þessa átt. En jeg vildi, að einhver segði það berum orðum, hvað við liggur, áður en þetta mál er afgreitt frá þinginu.