17.05.1918
Neðri deild: 25. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1042 í B-deild Alþingistíðinda. (1077)

55. mál, reglugerð fyrir sparisjóði

Þorleifur Jónsson:

Jeg verð að álíta, að haldið sje í rjetta átt með till. þessari. Með reglugerðinni er smásparisjóðum í sveitum gert mjög erfitt fyrir um alla starfrækslu, ekki einungis það, að bókfærslan er gerð of erfið og flókin, heldur öllu heldur hitt, að mjög erfitt getur verið að fá tvo menn til þess að undirskrifa gerðir sjóðsins, bæði gjaldkera og bókara. Áður var látið nægja, að gjaldkeri einn skrifaði undir. Það mun viðast hvar hafa verið venjan, að menn gera sjer far um að fá þann besta mann, sem kostur er á, af þeim, sem við sjóðinn eru riðnir, til þess að vera gjaldkeri hans, — mann, sem hægt er að bera fult traust til, og þá láta menn nægja undirskrift hans eins. Nú heimtar reglugerðin, að sjóðirnir hafi tvo fasta starfsmenn, gjaldkera og bókara, og að þeir undirskrifi saman.

Þegar um er að ræða sparisjóði upp til sveita, þá er sjaldan hægt að fá bókara á sama bæ og gjaldkerinn er. Þá verður annarhvor þeirra að takast ferð á hendur á starfsdögum sjóðsins, og það getur orðið ærið kostnaðarsamt. Það er sjálfsagður hlutur, að margir sveitasparisjóðir verða að leggjast niður, ef fylgja á fast fram ákvæðinu um svona margbrotna bókfærslu og svo þessu um undirskriftirnar. Jeg get ekki sjeð, að neitt væri úr vegi að draga úr þessum ákvæðum, þegar um smásjóði er að ræða.

Jeg held ekki, að nein hætta geti verið á því, að illa sje farið með sparisjóðsfje til sveita, enda veit jeg ekki dæmi til þess, að nein óregla eða óreiða hafi komið fyrir við slíka sjóði. Það er ekki heldur svo erfitt að líta eftir því þar, í fámenninu. Jeg veit dæmi til þess, að það hefir mikinn kostnað í för með sjer fyrir fátækan sveitasparisjóð að afla allra þeirra bóka, sem reglugerðin gerir ráð fyrir. Sá sjóður, sem jeg veiti forstöðu, hefir ekki fengið þær nærri allar enn, en þær, sem hann er búinn að fá, kostuðu um 150 kr. Við þennan bókakostnað bætist svo kostnaðurinn við aukinn starfskraft. Sjá þá allir heilvita menn, að þetta hlýtur að verða tilfinnanlegt fyrir litla sjóði. Jeg álít því rjett, að deildin samþykki þessa till., og vona jeg þá, að stjórnin sjái sjer fært að taka tillit til hennar, og rýmki eitthvað til í þessu efni.

Stungið hefir verið upp á því að vísa málinu til nefndar, og er jeg því ekkert mótfallinn.