17.05.1918
Neðri deild: 25. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1046 í B-deild Alþingistíðinda. (1079)

55. mál, reglugerð fyrir sparisjóði

1079Forsætisráðherra (J. M):

Jeg skal ekki segja neitt um, hversu nauðsynlegt er við litla sparisjóði að hafa eins margar bækur og reglugerðin mælir fyrir. Jeg get vel ímyndað mjer, að þess muni ef til vill ekki þurfa við minni sjóði.

En jeg verð að taka undir það með hæstv. atvinnumálaráðherra, að það er mjög undarleg aðferð að semja fyrst lög um, að stjórnarráðið skuli gefa út reglugerð, og koma síðan inn á þing með óljóst orðaða till. um undanþágu undan þessari reglugerð, og heimta hana samþykta strax án athugunar. Jeg held, að það sje óheppilegt að veita undanþágur undan reglugerðum á þennan hátt. Jeg held, að betra sje, að reglugerðin ákveði, að svo og svo margar bækur skuli hafðar í sparisjóðum í kaupstöðum og svo og svo margar í sveitasparisjóðum. Ef stjórnarráðið er búið að gefa út reglugerð og álítur bókfærsluna ekki trygga nema henni sje fylgt, þá væri þessi krafa um undanþágu ómöguleg, og stjórnin hlyti að neita henni. Og sem þingmaður verð jeg að segja, að jeg gæti varla tekið á móti því, að gefa fyrst út reglugerð og vera svo krafinn um undantekningar undan henni. En alt annað mál væri það, að breyta ákvæðum reglugerðarinnar í þessa átt, ef það gæti álitist tiltækilegt.

Háttv. þm. A.-Sk. (Þorl. J.) talaði um að skipa tvo menn. Það eru ekki lögin, heldur reglugerðin, sem skipar það, og er ekki ætlast til þess að breyta lögunum með reglugerð.

Jeg vildi nú leyfa mjer að mælast til þess, að málinu væri vísað til fjárhagsnefndar, og skil jeg ekki, að háttv. flm. (St. St.) geti haft neitt á móti því. En jeg verð að segja, að það er nóg af undantekningum, þótt þingið sje ekki að skipa stjórninni að semja reglugerð og gefa síðan undanþágur undan henni.