23.05.1918
Neðri deild: 29. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1062 í B-deild Alþingistíðinda. (1098)
57. mál, námsstyrkur til háskólasveina
Það, sem mælir með styrkhækkuninni, er þetta tvent:
Í fyrra lagi, að peningar hafa fallið í verði, og kemur það harðast niður á fátækum nemendum.
Í síðara lagi, að síðara árið njóta fleiri styrksins en fyrra árið. Fyrra árið voru styrkþegar 65, en 85 síðara árið. Þetta munar ekki litlu. Þar að auki er allur kostnaður meiri síðara árið, bæði fæði, húsaleiga og eldsneyti. Það er því auðsætt, að öll sanngirni mælir með því, að styrkurinn verði hækkaður, enda hefir meiri hluti fjárveitinganefndar reynt að fara fram á þetta.
Eitt atriði almenns eðlis skal jeg nefna, er mælir með því, að þingið reynist heldur höfðinglegt en nirfilslegt í fjárveitingum til námsmanna, og eigi að eins í þetta sinn, heldur einnig framvegis. Og ástæðan er sú, að áður sóttu menn oft erlendan háskóla, þar sem veittur var mikill styrkur og góður. Nú höfum vjer sett á stofn háskóla, sem ætti að verða landi og þjóð til gagns og sóma, þótt lítill sje. En nemendalaus verður hann aldrei til sóma. En vegurinn til þess að gera hann það er að bjóða nemendum verri kjör en háskóli erlendrar þjóðar, sem er oss ekki mjög skyld. Jeg vildi, að háskóli vor yrði ljós landsins og sómi. Vjer vitum, að þetta land getur ekki skarað fram úr að herfrægð og auði. En sú var tíðin, að þjóðin skaraði fram úr að andlegri menningu, og mætti svo enn fara. Og vegurinn til þess er sá, að styrkja menn til náms og hlynna að háskóla landsins.
Hjer er alt svo dýrt, að nám má heita ókleift. Fátækir nemendur verða að hleypa sjer í stórskuldir, til þess að geta dvalið hjer við nám. Jeg þykist því vita, að þetta verði auðsótt mál. Hjer er farið fram á 50% hækkun til eins árs, 1917—1918.