10.07.1918
Neðri deild: 67. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 299 í B-deild Alþingistíðinda. (110)

4. mál, almenn dýrtíðarhjálp

Frsm. (Sigurður Stefánsson):

Jeg get tekið undir það með hinum hæstv. fjármálaráðherra, að það þýði lítið að eyða tíma í umr. um þetta mál frekar en orðið er. Jeg skal geta þess, að bjargráðanefnd hefir ekki gefist kostur á að kynna sjer brtt. stjórnarinnar, en hefir að eins talað við hæstv. fjármálaráðherra nú í gær, en þá voru brtt. ekki tilbúnar. Jeg skal lýsa yfir því fyrir mitt leyti, og jeg geri ráð fyrir, að flestir bjargráðanefndarmenn hugsi líkt, að mjer er jafnilla við frv. nú sem áður, þótt brtt. hæstv. stjórnar verði samþ. En þó skal jeg lýsa yfir því, að atkv. nefndarmanna eru með öllu óbundin af því, sem jeg segi. En það er enn sem fyr, að nefndin vili fara lánaleiðina og telur hana þá rjettu leið í þessu máli. Jeg fyrir mitt leyti skal lýsa yfir því, og jeg hygg að svo sje um fleiri bjargráðanefndarmenn, að verði brtt. á þgskj. 375 ekki samþ., þá mun jeg greiða atkv. móti frv. þessu. Þessar brtt. hæstv. fjármálaráðherra fara að vísu nokkuð lengra í að þrengja aðganginn að þessum styrk, en jeg álít, að þessi dýrtíðarhjálp eigi engan veginn öðruvísi að vera en lán, þar sem um það er að ræða, að afstýra hallæri. Jeg er með því, að veita lán til þess, en ef hallæri er afstýrt, þá er það ófyrirsynju, að veita gjafir Það væri annað mál, ef hallæri væri komið, og þar af leiðandi veruleg bágindi, að styrkja þá með gjöfum þá, sem bágast ættu.