25.05.1918
Neðri deild: 31. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1064 í B-deild Alþingistíðinda. (1102)

57. mál, námsstyrkur til háskólasveina

Einar Arnórsson:

Jeg þakka háttv. þm. Dala. (B. J.) undirtektir hans undir brtt. mína á þgskj. 208, en annars er það mest honum að þakka, að hún er fram komin.

Ástæðan til þess, að við komum okkur saman um, að rjett væri að breyta orðalagi till., er sú, að eins og till. er orðuð frá háttv. fjárveitinganefnd, er það mjög tvísýnt, að hægt sje að skilja hana öðruvísi en svo, að þeir einir geti fengið viðbótina, er styrks hafa notið í vetur. En sumir hafa ef til vill orðið út undan vegna þess, hve styrkurinn er lítill. Það er oft álitamál, hverjum styrk beri að veita, en ekki er hægt að veita hann öllum, Viljum við nú, að þeir sjeu ekki útilokaðir, heldur sje full heimild til þess, að þeir fái viðbót, er óverðuglega hafa orðið út undan eða fengið hafa tiltölulega of lítið að áliti kennaranna. Og ef háttv. deild vill hleypa till. í gegn, þá er ekki vafamál, að þeir samþykki hana þannig breytta.